Kirkjuritið - 01.01.1965, Síða 74
Sig. Kristjánsson:
Viðtal við Bjarna Sigurðsson,
hreppstjóra í Vigur
Fyrir skömmu átti ég við'tal við Bjarna Sigurðsson, lirepp-
stjóra í Vigur í Isafjarðardjúpi, en liann stendur nú á liálfum
áttunda tug ára, fæddur 24. júlí 1889. Hann er sonur séra Sig-
urðar Stefánssonar, prests og alþingismanns í Vigur og konu
hans, Þórunnar Bjarnadóttur. Bjarni liefur gegnt mörg-
um trúnaðarstörfum í sveit sinni, auk búskapar og sjósókn-
ar á yngri árum. Hann hefur verið lireppsstjóri í Ogurhreppi
frá 1936 til þessa dags. Oddviti sveitar sinnar var hann frá 1924
— 1962, í skattanéfnd frá 1922—1962, sýslunefndarmaður frá
1920—1962. Þá var hann formaður búnaðarfélags sveitarinnar
frá 1922—’61 og bóndi í Vigur frá 1919—1953, að synir lians
tveir tóku við jörð og búi. Alla sína ævi hefur hann átt lieima
í Vigur og lifir þar nú elliárin ásamt konu sinni, Björgu Björns-
dóttur, hreppsstjóra frá Veðramóti í Skagafirði, en þau lijón
eiga 6 börn, sem öll eru á lífi. Hafa nú tveir synirnir tekið við
ættaróðali þeirra feðga og búa þar rausnarbúi, enda eyjan gagn-
söm mjög. Þar er æðarvarp mikið og lundatekja og mikil veiði-
sæld var kringum eyna áður fvrr, þótt minnkað liafi nú. Þá ber
jörðin inikinn bústofn, enda þeir bræður búmenn góðir. Þar er
líflegt að koma um varptímann, sérstaklega þegar meiri hluti
eyjarinnar er þakinn æðarfugli, kollu og hlika í þúsundatali-
Ríkir þá stundum óviðjafnanleg friðsæld yfir eynni, einkanlega
þó í kvöldkyrrðinni um bjartasta tíma ársins, þegar Djúpið
stafar í lognkyrrð síðkvöldsins.