Kirkjuritið - 01.01.1965, Blaðsíða 92
86
KIRKJURITIÐ
En þar sem um þætti er að ræða
er brugðið upp svipmyndum, en
ekki sögð samfelld saga og því oft
vikið að ýmsu, sem mann langaði
til að fræðast meira um.
En hér er maður a ferð, sem
gott er að eiga sainfylgd með, vegna
þess að hann hefur opin augun,
ann náttúrunni og gleðst yfir grjót-
inu jafnt og grasinu og fræðir um
margt, sem gaman er að komast
í kynni við. Honum er líka móður-
málið hugljúft. Af því ber frásögn-
in fagran blæ.
DOKTOR VALTÝR SEGIR FRÁ.
Ur bréfum Valtýs Gubmundssonar
til móður sinnar og stjúpa 1878—
1927. — Finnur Sigmundsson bjó til
prentunar. — Bókfellsútgáfan, Rvík.
1964. — Prentsmiðjan Oddi h.f.
Það Iiggur í augum uppi að blær
þessara bréfa er einhæfari og marg-
lireytni efnisins minni sakir þess að
þau eru öll til nánustu vanda-
manna hans: móðurinnar og stjúp-
ans. Þau létn sig að sjálfsögðu lielzt
varða lians einkahagi. Og þar sem
þau voru þar að auki búsett vestur
í Ameríku, gat Valtý enn síður
komið til liugar að ræða nákvæm-
lega uin starf sitt né stjórnmálahar-
áttu við þau. Rréfin birta manni
því fyrst og freinst hugþekka mynd
af höfundinum eins og hann kom
fram gagnvart vinuni sínum — og
hvaða mann hann liafði að geyma.
Lesandanuiu verður ljóst og hlýtur
að þykja aðdáunarvert, hvernig
Valtýr rífur sig upp úr fátækt og
umkomuleysi smalans og brýtur sér
hiklaust braut til mikillar mennt-
unar og í háskólakennarastöðu í
framandi landi strax að námi sínu
loknu. Hugur ltans og dugur sést
ekki síður á hinu, livað hann lætur
sig miklu skipta hag ættjarðarinn-
ar og leggur mikinn skerf af mörk-
um á þjóðinálasviðinu. Stofnun
Eimreiðarinnar og útgáfa hennar
er mikið afrek og lofsamlegt.
Því miður gætir lítt mannlýsinga
í þessari bók né frásagna af þeiin
máluni og viðburðum, sem Valtýr
varð frægastur af, lífs og liðinn.
Má þó slundum lesa nokkuð út
úr orðfáum atbugasemdum og
stöku sinnum milli línanna, hvern-
ig honum er innanbrjósts í þjóð-
málabaráttunni, og livað hann hef-
ur á prjónunum.
Kannske má vænta nýrrar bréfa-
bókar frá hans hendi, sem fyllir hér
í eyðurnar. Henni yrði tekið tveini
höndum.
VESTUR-ÍSLENZKAR
ÆVISKRÁR.
Benjamín Kristjánsson bjó undir
prentun. 2. b. ■— Bókaforlag Odds
Björnssonar. — Prentverk O. B.
1964.
Þetta bindi er svipað að stærð og
fyrra hindið og jafn prýðilegt að
frágangi. Grúi inanna talinn og
margar myndir á flestum síðuin-
Breylt er um form að því leyti að
hér eru víðast raktir lieilir ættbálk-
ar og liefur það niikinn kost í för
með sér. Leynir sér ekki að fyrir-
liöfn höfundar er geysimikil og