Kirkjuritið - 01.04.1974, Qupperneq 17
1910—1912, og voru fundir hennar
sérstaklega uppbyggilegir og
skemmtilegir. Og mikið var sungið.
Þó lœrði ég svo marga nýja og ynd-
islega sólma. Leið Ingibjargar ló síðan
hl Danmerkur og Englands. Varð hún
aðalframkvœmdastjóri K. F. U. K. í
Danmörku og slðar ó Norðurlöndum
um langt árabil og átti starfsríka og
merkilega œvi. Hún lést í Englandi
árið 1962, 75 ára að aldri.
-— Eftir þetta fór ég að spila á
samkomum við og við. Ég var tekin
inn í félagið um vorið 1912 af okkar
elskulega vini sr. Friðrik Friðrikssyni.
^iarni var alltaf að tala, bœði í kirkj-
uani á sunnudögum og I K. F. U. M.
°9 K., og fylgdi ég honum svo oft,
sem ég gat. Þannig komst ég í kynni
v'ð þetta starf, sem Drottinn hefur
álessað.
— Finnst þér tilhögun fundanna
hafa breyst mikið frá upphafi?
Nei, ekki get ég sagt það. Fund-
'rnir voru í húsi K. F. U. M. við Amt-
mannsstig eins og þeir eru enn í dag.
húsið hefur verið stœkkað mikið
°9 öll aðstaða því betri en var í upp-
afi, en húsið var nœstum nýtt, er ég
0nn þar fyrst. Sami fagnaðarboð-
skapurinn hefur alla tíð hljómað og
songurinn hefur sett sinn svip á fund-
',na, °9 nýt ég þess alltaf að koma
a fundi 0g ekki síst að spila undir
Son9. Nú starfar K. F. U. K. á 8 stöð-
Urn í Reykjavík og nágrenni.
, ' Rarna hefst þá starfsferill þinn
' ' k. U. K. árið 1911 og hefur honum
' linnt síðan, þótt liðin séu ekki
^'nna en 63 ár. Fleira hefur þú nú
starfað hjá félaginu en að tónlist-
inni. Varst þú ekki fljótlega kosin 1
stjórnina?
— Jú, það var árið 1916, sem ég
var kosin I stjórnina og var ég ekki
ánœgð með þá kosningu. Fannst ég
ung og óreynd og var ekki einu sinni
stödd á aðalfundinum.
— Hvernig var þá stjórnin skipuð?
— Frú Anna Thoroddsen var for-
stöðukona og með henni í stjórn voru:
Amalía Sigurðardóttir, Guðríður Þórð-
ardóttir, Sigríður Guðjónsdóttir og
Guðfinna Jónsdóttir. Var ég kosin í
stað Guðfinnu.
— Svo verður þú formaður félags-
ins.
— Já. Það var árið 1938 eftir lát
frú Guðrúnar Lárusdóttur. Gegndi ég
því starfi til ársins 1964 er frú Kristín
Möller, sem nú er formaður, tók við.
En ég vildi hœtta miklu fyrr.
— Þú hafðir alla tlð mikinn starfa
bœði á heimili þínu og utan þess,
sem prestkona I höfuðstaðnum. Segðu
mér, hvernig vannst þér tóm til að
sinna félagsstörfunum þar að auki?
Aðstœður á heimilum voru allt aðr-
ar í þá daga. Ég hafði alltaf góða
hjálp. Annars hefði þetta auðvitað
ekki verið hœgt. En stundum kom
þetta þó niður á börnunum. Stöðugt
fóru fram athafnir á heimilinu og allt-
af lék ég undir og reyndi að láta sem
minnst á mér bera. Þá mátti auðvitað
ekki heldur heyrast neinn hávaði, en
eins og allir vita var einstaklega hljóð-
bœrt 1 þessum gömlu timburhúsum.
Ég hefi alltaf verið ákaflega rólynd
15