Kirkjuritið - 01.04.1974, Page 18
að eðlisfari og hefur það oft komið
sér vel. Starfið gekk fyrir öllu, hvort
sem það var utan heimilisins eða
innan. Maðurinn minn gat ekki hugs-
að sér annað, Sporin eru orðin nokkuð
mörg milli Dómkirkjunnar, húss fé-
laganna að Amtmannsstíg 2 b og
heimilisins í Lœkjargötu 12 B. En Guð
var með, það var stœrsta hjálpin.
Ég hafði alltaf ánœgju af starfinu ekki
síst, ef ég gat aðstoðað með undir-
leik. Maðurinn minn sagði oft í
gamni: „Ef ég gifti mig aftur, verður
konan mín að geta spilað."
— Já, — Þá vœri nú gaman að
heyra svolítið um það, hvar og hvenœr
þú lœrðir að leika á hljóðfœri.
— Nú verður frú Áslaug svolítið
skrýtin á svipinn. Blessuð, þetta er
ekkert, sem ég kann. Mér þótti bara
strax svo gaman að tónlist. . .
Mamma hafði lœrt á orgel í skólan-
um á Ytri-Ey, þar sem hún var tvo
vetur við nám. Fljótlega eftir að hún
kom þaðan giftust foreldrar mínir.
Pabbi hafði mikið yndi af söng og
tónlist og söng svo vel. Það var alltaf
mikil hátíð, þegar mamma sat við
orgelið og spilaði og pabbi söng, en
það gerðu þau eins oft og þau gátu.
En svo dó pabbi, þegar ég var 8
ára. Þá fór ég að reyna að lœra að
þekkja nóturnar, en mamma hlýtur
að hafa hjálpað mér. Enginn var þá
á Isafirði, sem kenndi slíkt. En mamma
var þar kirkjuorganisti í mörg ár.
Þegar ég var 12 ára kom ég til
Reykjavíkur og fór í spilatíma til
frœndkonu minnar tvo vetur, um leið
og ég gekk í skóla hér. Þá var ég
farin að spila töluvert. Enginn tón-
listarskóli var þá hér ! borginni, Nú
og svo œfði ég mig bara alltaf eins
og ég gat. Ég fór reyndar til Kaup-
mannahafnar árið 1907 með það fyr-
ir augum að fá tilsögn í tónlist. En
þá gerðist það, að eftir eina kennslu-
stund veiktist kennarinn, svo ekki
varð meira úr því. Það voru engin ráð
til að kaupa dýra tíma. Mér fannst ég
hafa töluvert gagn af þessum eina
tíma, þótt ótrúlegt sé og œfði mig af
kappi allan veturinn. Og hvað held-
urðu, þegar ég kom aftur heim til
Isafjarðar, var ég látin fara að kenna
á hljóðfœri, því víða voru hljóðfceri
til. Þá var ég „sigld" eins og þa^
hét, og hlaut að kunna þessi ósköp-
Nú — þá var ekki um annað að gera
fyrir mig en lœra tónfrœðina sjálf, °9
það gerði ég. Svo þú sérð, að eg
kann ekkert. Þó kenndi ég á pían0
mörg fyrstu árin eftir að ég fór
búa hér í Reykjavík. Svona var þetta
þá.
— Nú féll mér allur ketill í e^'
Kennir á hljóðfœri annast undirleik
heima og ! félögunum okkar, þega'
með þarf, leikur oft einleik, þegar ser-
staklega er vandað til hátíða okkur
öllum til óblandinnar ánœgju. Hefur
spilað sleitulaust í u. þ. b. 70 ár. Tón
listin er henni ! blóð borin, það er ek
ert efamál. Guðs gjöf, sem hún hef°r
reynt að vinna úr eftir bestu getu °9
látið sem flesta njóta með sér. Nu
dag spilar hún t. d. hvern sunnuda9
á barnaguðsþjónustum í Neskirkju-
— Hver eru sterkustu áhrif, seiri Þu
hefur orðið fyrir persónulega í fél°9
unum?
16