Kirkjuritið - 01.04.1974, Page 20
mörgum ógœtum kennurum bœði frá
K. F. U. M. og K. Og hún var alltaf
tíður gestur við náðarborð Drottins.
Samstarf Bjarna og sr. Friðriks, sem
hófst, er Bjarni hjálpaði honum að
skrifa fundarboðin, þegar hann stofn-
aði K. F. U. M. 2. jan. 1899 rofnaði
aldrei, og vinátta þeirra var jafn heil
meðan báðir lifðu. Ég minnist sérstak-
lega 90 ára afmœlis sr. Friðriks. Þá
komu stjórnir félaganna til hans og
stóðu í hring um hann, en Bjarni flutti
honum þakkar og blessunarorð frá
stjórnum félaganna. Þá var mikil há-
tíð. Sr. Friðrik kunni sannarlega að
halda hátíð. Ég minnist margra há-
tíðafunda i félögunum, er stóri salur-
inn var skreyttur Ijósum og blómum.
Svo er það Vindáshlíð. Hvílíkur
fögnuður og brennandi áhugi, þegar
byrjað var að byggja skála í Vindás-
hlíð. ,,Ef Drottinn byggir ekki húsið
erfiða smiðirnir til ónýtis" (Sálm.
127,1) Það er ógleymanleg stund, þeg-
ar ég fékk að taka fyrstu skóflustung-
una 6. júní 1950. (En þann dag var
fyrsta K. F. U. M. félagið í heiminum
stofnað í London 1844).
Guð hafði útvalið Guðlaug Þorláks-
son til þessa mikla verks að stjórna
byggingu skálans, Mikil var starfs-
gleðin hjá unga fólkinu í félögunum.
Um hverja helgi var farið til starfa !
Vindáshlíð. Við hjónin fórum þangað
svo oft til þess að fylgjast með starf-
inu og samgleðjast þessu unga og
áhugasama fólki. Sumarbúðir fyrir
telpur, ungar stúlkur og konur á öll-
um aldri hafa verið starfrœktar í Vind-
áshlíð slðan 1948. Fyrst ! tjöldum og
síðan ! skálanum. Og hefur Drottinn
sannarlega blessað það starf.
Hallgrlmskirkja í Saurbœ var flutt
upp ! Vindáshlíð 24. sept. 1957. Guð-
laugur hringdi til m!n þaðan, þegar
kirkjan var komin á sinn stað. Bjarni
vlgði svo kirkjuna 16. ágúst 1959
ásamt Ásmundi Guðmundssyni, fyrr-
verandi biskupi, Sigurbirni Einarssyni,
biskupi og sr. Friðrik. Þá var sem oftar
hátíð ! Vindáshlíð. „Lofa þú Drottin
sála m!n og allt, sem ! mér er, hans
heilaga nafn. Lofa þú Drottin sála
m!n og gleym eigi neinum velgjörð-
um hans."
Ég minnist með þakklœti manna og
kvenna, sem starfað hafa í félögun-
um. Ég minnist svo margra, sem
komnir eru heim til Drottins. Ég þakka
K. F. U. K. og K. F. U. M. fyrir blessað-
ar náðarstundir, er boðskapur Drott-
ins hefur hljómað til m!n. Trúarsystar
mínar hafa umvafið mig kœrleika ekki
síst hin síðari ár, er þœr hafa bók-
staflega borið mig á örmum sér o9
sýnt mér ótrúlega þolinmœði. Það f®
ég aldrei fullþakkað. Svo vil ég giarn_
an benda á ágœtt heimildarrit a
sögu K. F. U. K. En það er afmœlisriti '
sem gefið var út á 50 ára afmœli fe
lagsins 1949.
— Nú segir frú Áslaug allt ! eina-
,,Þú verður að passa að skrifa sem
minnst um mig. Heldur um sr. Friðrik-
Að svo mœltu þýtur hún að flyghnUl^
og segir: „Mér finnst þetta alltaf sV°
fallegt lag," og hún leikur la9'
„Ljómandi Lindarrjóður" við sálm e
sr. Friðrik. Það eru engin
hljómum hins volduga hljóðfœris, P
sú, sem leikur sé komin á nírœðisa
urinn. Frú Áslaug verkar á mig eins °
hún sé fœdd spilandi og ekki a el
það, heldur spilandi sífellt þai< ar
18