Kirkjuritið - 01.04.1974, Blaðsíða 38
Friðbjörn Steinsson, bóksali.
er hvergi tíundað, enda ýmsum við-
kvœmt, hve marga Reglan hefir dreg-
ið upp úr áfengisholskeflunni eða
forðað frá henni. Hefur þó sá brekinn
tortímt fleiri góðum sonum þjóðar
vorrar en sjór og vötn. Það er gott
verk og þakkarvert að bjarga manns-
lífum. Hitt er þó sjálfsagt enn mikil-
vœgara að koma í veg fyrir, að menn
hljóti meiðsl eða örkuml, andleg eða
likamleg. Það var gamalla manna
mál, að betra vœri heilt en vel gróið.
Nú er að vísu ár og dagur, síðan
Sverrir konungur hélt rœðuna sína
frœgu gegn þýzkum vínsölum, en þó
virðist margur enn jafnóvitur og Norð-
menn voru á þeirri tíð. í rœðu sinni
sagði konungur meðal annars: ,,Þá
eggjar hún (ofdrykkjan) þess að van-
rcekjast allri siðsemi og réttum boð-
orðum, en girnast syndirnar og af-
hugast allsvaldanda Guði og öllu hinu
rétta, minnast á engan hlutinn, þann
er hann hefir gert“. Þetta vissu Iíka
tólfmenningarnir, sem fyrir 90 árum
lögðu grundvöllinn að félagsmála-
hreyfingu, sem nú telur um 1 1 þús-
undir manna. Þeir vissu, hver bölvun
áfengisneyzla er líkama og sál. Og
allar vísindarannsóknir síðari tíma
hafa staðfest álit þeirra.
Það er ánœgjuefni, að nú er eins
og rofi til. Á liðnum vetri hafa fIe'rl
nýir félagar bœtzt Reglunni en um
langan aldur. Enn höfðar hún til þesS
bezta, sem býr í brjósti heilbrigð5
manns. Enn geymir hún eldinn, sem
knýr til baráttu fyrir þeirri hugsjón að
firra menn þeim voða, sem helnautn-
ir búa þjóðum. ,,Enn er eitt", segi'
Brynleifur Tobíasson, ,,sem veitt hefi'
Reglunni ómetanlegan styrk síðast en
ekki sízt: Hún er reist á kristilegum
grundvelli, og það eru auðrakin sp°r'
in. Þegar Reglan hefir af mestum trun
aði fylgt meginkenningum kristm
dómsins, haldið þeim með einlcegnl
og áhuga að félögum sínum, hefir hen
orðið þeim og þjóðfélögunum í he'
til mestrar blessunar".
HEIMILDIR:
Brynleifur Tobiasson: Bindindishreyfingi'1 a
landi. Ak. 1936.
Ak.
40 ára minning Góð-templara á Akureyn-
1924.
p 195®*
Gils Guðmundsson: Öldin sem leið. ^v. ^
Indriði Indriðason: Góðtemplarareglan á l^
75 ára. Rv. 1959.
íslenzki Good-Templar. 1. árg. Rv. 1886 8^^
Jón Sigtryggsson: Ölvun og glœpir. Ry*
Söngbók góðtemplara. Rv. 1934.
36