Kirkjuritið - 01.04.1974, Page 59

Kirkjuritið - 01.04.1974, Page 59
Svo voru stafkirkjur byggðar. annar innan. Þá var haldin ein hin mesta veizla á íslandi, „og var það enn gert meir af stórmennsku en fullri forsjá", segir höfundur Hungurvöku. Og enn segir hann, að Klœngur hafi látið prýða, „það mest hann mátti til að fá, kirkju þá, er hann lét gera að Skálaholti, unz hún var að öllu búin. Hann lét gera gullkaleik og setja gimsteinum og gaf kirkjunni. Hann lét og rita tíðabœkur miklar, miklu betri en áður voru." Þetta má þá heita saga Skálholts- kirkju í liðlega hálfa aðra öld. Forn- leifafrœðingar œttu þó að vera nokkru fróðari eftir gröft þann, sem gerður var í Skálholti um miðja þessa öld. En þess hefur enginn kostur gefist að hnýsast í fórur þeirra. Fer nú margur fáfróður að verða langeygur eftir upplýsing. í fornu húsi GuSs Svo hafa sumir menn sagt, að kirkja Klœngs biskups mundi verið hafa hið mesta timburhús um alla Norðurálfu á sinni tíð. Magnús Már Lárusson, prófessor, taldi, að hún hefði verið langkirkja af enskri gerð, en hann reit ágrip af sögu kirkjunnar fyrir erlenda gesti við vígslu hinnar nýju kirkju 1963. Þá og síðar mun þó ýmsum hafa verið mjög í huga, að Klœngs- kirkja var byggð úr norskum viði á öld stafkirknanna norsku. Ekki veit ég fullnaðarrök í máli því, en þessa er hér getið, vegna þess að hinar fornu kirkjur í Skálholti komu í hugann í hvert sinn, er stafkirkju bar fyrir augu í Noregi. 57

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.