Kirkjuritið - 01.04.1974, Blaðsíða 70
issöfnuð Messíasar fró og af öllum
þjóðum.
Predikun kristniboðsins ó alls stað-
ar að leiða til þess, að kirkja Jesú
Krists sé gróðursett. Hún leiðir fram
nýjan, takmarkaðan veruleika og er
salt og Ijós í því þjóðfélagi, sem um-
lykur hana.
Heilagur andi gefur safnaðarmönn.
um, fyrir fagnaðarerindið og sakra-
mentin, nýtt líf og andlegt samfélag,
sem varir að eilífu, bœði við Guð,
sem er raunverulega nálœgur þeim,
og hverjum við annan. Það er hlut-
verk safnaðarins að hvetja með vitn-
isburði sínum, einnig hina týndu,
sem lifa enn utan samfélagsins, til
þess að verða limir á líkama Krists,
enda fœrir það þeim hjálprœðið.
Söfnuðurinn á og að setja fram fagn-
aðarerindið sem nýtt samfélag.
Þar með snúumst vér gegn því við-
horfi, að kirkjan sem söfnuður Jesú
sé aðeins hluti af heiminum. Vér and-
mœlum því, þegar burt er máður hinn
mikli munur á hinum tvenns konar
veruleika, enda varði munurinn að-
eins skilning og hlutverk. Vér rísum
gegn því, að kirkjan hafi ekki annað
fram yfir heiminn en vitneskju um
framtíðarsáluhjálp, sem allir menn
eigi að öðlast hlutdeild í.
Vér andmœlum og þeim hjálprœð-
isskilningi, sem er eingöngu miðaður
við þennan heim, en samkvœmt hon-
um eiga kirkjan og heimurinn aðeins
hlutdeild sameiginlega í félagslegri
friðþœgingu. Þetta mundi leiða til
þess, að kirkjan tortímdi sjálfri sér.
6. „Fyrir því skuluð þér minnast
þessa: Sú var tíðin, að þér, sem að
holdinu til eruð heiðingjar . . . sú var
tíðin, er þér voruð án Krists, útilokað-
ir frá þegnrétti ísraelsmanna og stóð-
uð fyrir utan sáttmálana, sem fyrir-
heitin voru tengd við, vonlausir og
guðvana í heiminum" (Efes. 2,11—-
12).
Vér gerum oss Ijóst og vitnum:
Tilboði hjálprœðisins í Jesú Kristi
er undantekningarlaust beint til allra
manna, sem eru ekki enn tengdir hon-
um í meðvitaðri trú. Áhangendur ann-
arra trúarbragða og lífsviðhorfa geta
þv! aðeins eignazt hlut í þessu hjálp-
rœði, að þeir láti leysa sig úr fyrn
fjötrum sínum og falsvonum, en verði
gróðursettir á líkama Krists fyrir tru
og skírn. Einnig ísrael mun finna sálu-
hjálp fyrir afturhvarf til Jesú Krists.
Þar með höfnum vér þeirri villu-
kenningu, að trúarbrögðin og lífsvið-
horfin séu einnig hjálprœðisvegir við
hlið trúarinnar á Krist.
Vér andmœlum því, að „návist
Krists" meðal fylgjenda annarra trúar-
bragða og gagnkvœm trúarleg urrl'
gengni við þá í samtökum komi í stað-
inn fyrir boðun fagnaðarerindisins,
sem knýr til afturhvarfs, í stað þesS
að vera gott tœki fyrir kristniboðið
til að tengjast fólki.
Vér andmœlum því, að önnur tru-
arbrögð og hugsjónastefnur geti kom-
ið í staðinn fyrir kirkju Krists, ef Þœr
taka að láni kristnar hugsjónir, vonir,
markmið og þjóðfélagsafstöðu, þó a
því sé sleppt, að þetta er afdráttar^
laust tengt persónu Jesú Krists.
beina þeim meira að segja ! att
trúarbragðablöndunar og andstö u
við Krist.
7. „Þessi fagnaðarboðskapur uj11
ríkið mun predikaður verða um a
68