Kirkjuritið - 01.04.1974, Qupperneq 74
tak safnaðarins og sóknarprestsins er
til fyrirmyndar og forvitnilegt verður
að sjó, hversu blaðinu reiðir af. Safn-
aðarblað hlýtur að vera afar gott
starfstœki í ungum og fjölmennum
söfnuði, en það er ekkert óhlaupaverk
að gefa út blöð ó íslandi um þessar
mundir. Þeim mun mikilvœgari er
þessi tilraun og œskilegra að hún tak-
ist. G. Ól. Ól.
UM STÖRF OG EMBÆTTI ÆSKU-
LÝÐSFULLTRÚA ÞJÓÐKIRKJUNN-
AR.
Æskulýðsstarf kirkjunnar á íslandi er
jafngamalt kirkjunni í landinu. Það er
kunnara en frá þurfi að segja, að ís-
lenzka kirkjan hefur œtíð unnið mikið
og gott starf á öllum sviðum mannlegs
lífs. 1 skólum kirkjunnar og á heimil-
um presta voru menningarmiðstöðvar
fyrri tíma. Þeir eru ófáir íslenzku ungl-
ingarnir, sem prestar kenndu og
studdu til náms, unglingar, sem ann-
ars hefðu tœpast átt tœkifœri til
menntunar.
Nú er það ekki œtlun mín né heldur
geta, að tíunda œskulýðsstarf íslenzku
kirkjunnar áliðnum öldum. Ég vildi að
eins minna á skóla kirkjunnar, presta,
er komu unglingum til mennta, ferm-
ingarfrœðsluna, eftirlitið með lestrar-
kunnáttu, hjálp til handa lítilmagnan-
um, hvort heldur hann var ungur eða
gamall og þannig mœtti lengi telja.
[ dag á kirkjan sér skóla að Löngu-
mýri og í Skálholti og œskulýðsstarf
er unnið í öllum söfnuðum landsins.
Það var hins vegar samkvœmt kröfu
tímans, að stofnað var embœtfi œsku-
lýðsfulItrúa þjóðkirkjunnar árið 1960.
Grundvallarskilningur minn á embœtti
œskulýðsfulltrúa er sá, að honum beri
að þjóna œskulýðsstarfi safnaðanna,
styðja við bak þess, hvetja það og
efla, svo sem hann má. Honum ber og
að halda tengslum við útlönd á sviði
œskulýðsmála og kynna nýjungar her
heima. Raunar er hér ekki um ,,frum
legan" skilning að rœða, því af kynn-
um mínum af starfsbrœðrum mínum
í nágrannalöndunum er einmitt þessi
skilningur grundvöllur starfs þeirra.
Við, sem störfum á skrifstofu œsku-
lýðsful Itrúa þjóðkirkjunnar, teljum
okkur aðstoðarmenn sóknarpresta
fyrst og fremst. Við viljum veita þeim
alla þá aðstoð, sem verða má. Hjálpa
þeim við sáningu Guðs orðs á þeim
ökrum, sem þegar eru plœgðir °9
hjálpa til við gerð nýs akurlendis-
Til þessarar þjónustu hefur œskulýðs-
fulltrúi, auk tveggja fastra samverka-
manna, nefndir, er fjalla um ákveðna
málaflokka, eins og heiti nefndanna
bera með sér, en nefndirnar eru-
sumarbúðanefnd, vinnubúðanefn <
frœðslunefnd, skiptinefnd og cesku
lýðsfélaganefnd. Formenn nefndanna
mynda „miðnefnd", sem ber heiti
ÆskulýSsnefnd ÞjóSkirkjunnar. Biskup
landsins skipar þessar nefndir. Æska
lýðsnefnd heldur fundi með föstu^
starfsmönnum œskulýðsstarfsins u. P-
b. 2 sinnum í mánuði.
Til að lýsa í stuttu máli œskulý s
starfi þjóðkirkjunnar er rétt að drepa
litillega á málaflokka nefndanna, ^
áður var getið. 1) Sumarbúðane n
Sumarbúðir hefur kirkjan rekið í
en áratug á ýmsum stöðum á landi
Reksturinn er ýmist allur eða að el
hverjum hluta á vegum œskulýðs u
72