Kirkjuritið - 01.06.1974, Blaðsíða 98
greinargerð, — hefir sett þessar at-
hugasemdir í nýtt samhengi að voru
óliti. Samþykki um eðli embœttisins
skal ganga fyrir íhugun á gagn-
kvœmri viðurkenningu embœttanna.
Það, sem vér höfum sagt, er sameigin-
leg niðurstaða nefndarinnar um höf.
uðatriði, þar sem engin trúfrœðileg
frávik koma til greina.
Augljóst er einnig, að vér höfum
ekki rœtt hin miklu vandamál um
vald, sem risið geta í rökrœðum um
embœttið né höfum vér rœtt um, hver
skuli hafa forsœti í kirkjunni. Oss er
Ijóst, að mismunandi skilningur á því,
nú um stundir, er hindrun í sáttargjörð
milli kirkna vorra um hið eina samfé-
lag, sem vér þráum. Nefndin snýr
sér nú að rannsókn þeirra atriða, sem
að þessu lúta.
I þessari sameiginlegu nefnd eru tuttugu
menn, tíu frá hvorri kirkju. Formaður nefndar-
innar er biskupinn í Ossory, Ferns og Leighlin'
H. R. McAdoo (anglikanskur). Varaformaður ©r
aðstoðarbiskupinn í Northampton, Alan C. Clark-
(rómverskur).
Ministry and Ordination. Þýðing A. J.
192