Kirkjuritið - 01.06.1974, Blaðsíða 18
frœga var flutf og telja má einn elzt-
an, ef ekki elztan kirkjustað á íslandi.
Sóknarkirkjan var flutt þaðan að
Prestsbakka fyrir rúmum hundrað ár-
um vegna sandfoks. Sóknin er óskipt
eftir sem áður og stendur vel saman
um sína veglegu Prestsbakkakirkju.
Kapellan er reist fyrir samskotafé með
lítils háttar styrk frá Alþingi. Brœð-
urnir Helgi og Vilhjálmur Hjálmars-
synir teiknuðu hana.
Það má vera kirkju landsins allri til
uppörvunar að veita því athygli og
minnast þess, að slíkir atburðir gerð-
ust á þessu minningarári.
Námskeið o.fl.
Námskeið fyrir kristnifrœðikennara
var haldið hér í Reykjavík á vegum
menntamálanefndar þjóðkirkjunnar
dagana 5.—12. þ. m. Aasmund
Dahle, sem nú er forstöðumaður upp-
eldismálastofnunar norsku kirkjunnar,
var stjórnandi námskeiðsins. Þetta
sem annað framtak menntamála-
nefndar undir forustu Ólafs Hauks
Árnasonar vil ég þakka fyrir kirkj-
unnar hönd og sér í lagi í nafni
prestastefnunnar, en menntamála-
nefnd er til orðin að frumkvœði henn-
ar. Nefndin hefur látið til sín taka
með athyglisverðum árangri. Eina af
undirnefndum hennar bað ég að taka
til athugunar fóstureyðingarfrum-
varpið. Undir forustu formannsins, dr.
Björns próf. Björnssonar og með að-
stoð tilkvaddra ráðunauta, var samin
ýtarleg álitsgerð, sem send var öllum
alþingismönnum. Önnur undirnefnd,
þar sem sr. Guðmundur Þorsteinsson
er formaður, samdi athyglisverða á-
litsgerð um drög að frumvarpi um
fullorðinna frœðslu, sem sent var
kirkjuráði til umsagnar. Óhœtt er að
fullyrða, að áhrifa nefndarinnar hafi
gœtt um þœr breytingar, sem urðu á
tveimur greirium grunnskólafrum-
varpsins, áður en það var afgreitt á
Alþingi. Þar á ég við ákvœði fyrstu
greinar um markmið skólans, þar sem
tekið er fram, að starfshœttir skólans
skuli mótast af kristilegu siðgœði, og
í öðru lagi greinina um námsefni, þar
sem kristin frœði hafa í lögunum
tvírœðari sess en áður var bert skv.,
frumvarpinu. Ber oss að þakka þeim
alþingismönnum, sem hér beittu ser
til góðs. Þá er vert að benda á þann
árangur af starfi nefndarinnar, a^
kristin frœði hafa verið tekin upp sem
valgrein í Menntaskóla Reykjavíkur.
Hefur og verið rœtt við forráðamenn
annarra menntaskóla um þetta °9
má gera sér vonir um ,að sami ar'
angur náist af þeim viðrœðum.
Utanfarar
íslendingar áttu 3 fulltrúa á aPP
eldis- og skólamálaráðstefnu í Hels
ingfors í fyrra. Þeir fóru á vegarT1
œskulýðsnefndar og menntamálo
nefndar sameiginlega. Einn fulltruinn,
Helgi Þorláksson, skólastjóri, kynnt1
sér í framhaldi þessarar ráðstefný
allýtarlega stöðu kristinna frœða
skólum Norðurlanda, en hann er f°r
maður námsskrárnefndar, skipaðar a^
menntamálaráðuneytinu, og var P
gert í samráði við menntamálane n
þjóðkirkjunnar. En það er Ijóst, ®
vœntanleg reglugerð, sem sett ver U_
um framkvœmd hinna nýju skoia
112