Kirkjuritið - 01.09.1974, Side 26
við vandamál og erfiðleika eiga að
stríða. Hann er kennari í lífspeki og
trú, réttlœti, drengskap og sannleika.
Og hann er Ijósberi og huggari þeirra,
sem við sjúkdóma eiga að striða og
bíða við dauðans dyr.
í meira en þrjár aldir hefur séra
Hallgrímur verið ástmögur íslenzku
þjóðarinnar. Engan mann hefur al-
þýða manna í þessu landi metið og
dáð meira en hann. Enginn hefur haft
meiri eða blessunarríkari áhrif á ís-
lenzkt mannlíf og menningu.
í meira en 300 ár hefur séra Hall-
grímur verið hinn mikli og lýsandi
viti, sem borið hefur Ijós og anda
Jesú Krists inn í líf íslendinga kyn-
slóð eftir kynslóð. Passíusálmar hans
hafa verið íslendingum varanlegt veg-
arnesti, trúarleg ncering og leiðarljós
á vegi þeirra frá vöggu til grafar.
Frá því barnið biður fyrsta sinn
blítt og rótt við sinnar móður kinn,
til þess gamall sofnar síðustu stund,
svala Ijóð þau hverri hjartans und.
Svo segir í hinu frœga kvœði séra
Matthíasar, sem margir munu kunna
og enn þá á sess í skólaljóðum ís-
lenzkra barna. Eins og kunnugt er orti
séra Matthías þetta mikla kvœði um
séra Hallgrím á 200 ára ártíð hans
fyrir hundrað árum. Fjörutíu árum síð-
ar, eða árið 1914, þegar þess var
minnzt, að liðin voru 300 ár frá fœð-
ingu séra Hallgríms, flutti séra Matthí-
as erindi um skáldið ! Akureyrarkirkju,
og var það birt í Skírni það sama ár.
Þar segir meðal annars: „Þegar vér
virðum Hallgrím Pétursson fyrir oss
sem sálmaskáld eingöngu, megum vér
216
sleppa öllum samanburði. í þeirri
grein ber hann höfuð og herðar eigi
aðeins yfir alla samtíðarmenn sina
hérlenda, heldur öll sálmaskáld vor,
sem síðan hafa lifað. Valda því hans
sérstöku gáfur og guðmóður. Þótt síð-
an hafi verið ort einstök guðrœkin
Ijóð jafnfögur og hrífandi, hafa þaU
verið stutt og á stangli. Er margt a
milli að yrkja einn og einn ágœtan
sálm og samstilltan flokk margra
sálma eins og Passlusálmarnir eru"-
Þá skal tilfœrð hér umsögn Páls
lögmanns Vídalíns um Passíusálm-
ana. En Páll var skáld goft og ncest-
um að segja samtímamaður Hall-
gríms, þó að reyndar vceri ekki fcedd-
ur fyrr en 1667. Hann segir, að Pass-
íusálmarnir taki fram öllu því, „sern
allir aðrir hér á landi hafi kveðið 1
því efni og standi framar lofi sínu,
séu óviðjafnanlegir og muni ódauð-
legir í framtíðinni. Muni af þem1
standa gagn og gœði öldum og °'
bornum, meðan nokkur neisti sé eft,r
guðrœkni í kirkju Krists á íslandi •
í þriðja lagi vil ég tilfœra hér
nokkur orð eins merkasta íslending5
nútímans, Halldórs Laxness, um Pas?'
íusálmana. Hann segir svo í bók sinm
„Vettvangur dagsins": „Það er vafa'
samt, hvort Jesúviðfangsefninu hafa
nokkru sinni verið gerð þvílík skil 1
skáldskap sem Passíusálmum Ha
gríms Péturssonar, að guðspjöllunum
fráskildum. Það má mikið vera, e
Passíusálmar eru ekki tindur sérstaki
ar öldu í heimsbókmenntunum, urn,
leið og skáldsnilld fslendinga ncet
þeim hámarki í annað sinn". Þá seg1
nóbelsskáldið, að þeir kostir, sen1
vegi þyngst í skáldskap séra Ha