Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.09.1974, Page 37

Kirkjuritið - 01.09.1974, Page 37
Nokkur vers úr andlátssálmi, er síra Hallgrímur Pétursson orti á sóttarsæng Guð komi sjólfur nú með náð, nú sjái Guð mitt efni og ráð, nú er mér, Jesú, þörf á þér, þér hef ég treyst í heimi hér. Ég hef aldrei í nokkri nauð nauðstaddur beðið utan Guð, Guð hefur sjálfur gegnt mér þá, Guð veri mér nú líka hjá. Ákvörðuð mín og mœld er stund, mitt líf stendur í þinni hönd, andlátið kemur eitt sinn að, einn veiztu, Guð, nœr skeður það. Nú hef ég þar á nokkurn grun, nálœgjast þessi stundin mun, holdið mitt er af harmi þreytt, hafa kraftarnir sér umbreytt. Vitnisburð þann frá eilífð átt, að þú hjálpir á beztan hátt, þá endast megn og mannleg stoð, miskunna þú mér, Drottinn Guð. Láttu nú sannast liðið þitt, líttu á kvein og andvarp mitt, ég sárgrátbœni, son Guðs, þig, syndirnar skildu nú við mig.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.