Kirkjuritið - 01.09.1977, Síða 36
„Eins og draum, er maður vaknar,
fyrirlítur þú, Drottinn, mynd þeirra ...“
(20. v.)
Frelsun og hjálpræði er einungis,
þar sem menn fela sig Guði á vald,
leita hælis hans, byggja á bjargi því,
sem hann er:
,,En ég er ætíð hjá þér,
þú heldur í hægri hönd mína.
Þú munt leiða mig eftir ályktun þinni
og síðan láta mig ná sæmd.“
(23.-24. v.)
Menn hafa löngum látið sig dreyma
um himininn, talið að ,,himinvissan‘“
kveiki líf í æðum, eins og að orði er
komizt í vinsælum sálmi. En í 73.
sálmi Davíðs kemur fram, að fram-
haldslífið er háð tilveru Guðs, byggist
á virkni hans, svo að nefnt sé hugtak,
sem mjög gætir í guðfræði siðbóta-
frömuðarins, Calvins.
í sálminum segir ennfremur:
„Hvern á ég annars að á himnum?
og hafi ég þig, hugsa ég eigi um neitt
á jörðu.
Þótt hold mitt og hjarta tærist,
er Guð bjarg hjarta míns og hlutskipti
mitt um eilífð." (25.—26. v.)
Guðbrandur Þorláksson hefur þetta
svona í biblíu sinni:
,,Þó blíf ég samt með jafnaði hjá
þér og þú styður mig við þína hægri
hönd.
Þú leiðir mig eftir þínu ráði og með-
tekur mig endilega til æru.
Nær að eg hefi aðeins þig þá hirði
eg ekki um himin né jörð.
Þó að einninn mín sála og líf farist
af vanmegni þá ertu Guð þó alla tíma
mitt hjartans traust og mitt hlutskipti.“
Þessi þýðing miðast við Lúther, en
hans þýðing er hér sem oftast til-
þrifamikil og stórsnjöll, en frumtext'
inn mun að vísu ekki vera hér ótví'
ræður.
Athyglisvert er, að Guðbrandur not'
ar orðið endilega þar sem Lúther hef'
ur „endlich" og íslenzka þýðingin nú
,,síðan“, ,,og síðan láta mig ná sæmd'
Endilega hér í Guðbrandsbiblíu e<
orð, sem er hlaðið trúarlegri merk'
ingu og næsta djúpri. Á máli Guð'
brands og Lúthers táknar „endileg3
ekki aðeins að lokum, né umfram
heldur algjörlega án skilyrða — já, e<]
verðleika!
Hermann Gunkel hefir rétt fyrir sér’
er hann telur niðurstöðu 73. Davíð5'
sálms í samræmi við orð postula115
í II. Kor. 12.9: „Náð mín nægir Pe<’
því mátturinn fullkomnast í veikleika-
Minnzt var á Calvin. Mikill fylð'5'
maður kenninga hans á Englandi vðr
Augustus Montagne Toplady (1740"''
1778). Hann var mikilvirkur rithöfu^
ur í calvinskum anda og gerðist mj^
andvígur John Wesley, enda
hann fjær Calvin en flestir forýsttJ'
menn Meþódismans brezka. ,g
Toplady var einnig afkastam^1
skáld.
En í dag er hans raunar minrl
„vegna aðeins eins verka hans, s®
líta má á, þótt fleiri ritningarsta®'
komi hér til greina, útleggingar á 7 '
sálmi Davíðs og þá um leið hins
sem gæti haft að yfirskrift 47. vefs'
„Lifi Drottinn, lofað sé mitt bjarð-
Hér er um að ræða sálminn:
„Rock of ages, cleft for me.“ .
í 3. tbl. af Verði Ijós, marz 1900, P'
ist þýðing þessa sálms eftir Matti1'
Jochumsson: Bjargið alda. UpP113
versið þar þannig:
194