Kirkjuritið - 01.12.1977, Side 46

Kirkjuritið - 01.12.1977, Side 46
ar. Helgisiðabók, sálmabók kirkjunn- ar og bibiíuþýðing sú, sem lesið er úr við kirkjulegar athafnir eru grundvöll- ur trúfræði kirkjunnar. Frjálslyndi og rétttrúnaður gætu á því sviði lent í nokkrum deilum. Sanngjarnara væri auðvitað að tala um mismunandi af- stöðu til kenningar og boðskapar kirkjunnar, þar eð langtum fleira teng- ir þá, sem tilheyra kirkjunni en það, sem skilur í rnilli þeirra. Um markmið kirkjunnar er það helzt að segja, að það er annað en allra annarra ríkisstofnana. Starf hennar er tengt öðrum heimi, öðru ríki, sem ekki er af þessum heimi. Hún er hjálpræðis- vegur meðlimum sínum, og á að því leyti erindi við tiltekinn hóp manna, en leitast þó við að ná til allra. En kirkj- an þjónar líka þessum heimi og læt- ur sig varða hag og heill manna hér. Hvernig háttað er tengslum ríkis og kirkju hér á landi verður ekki fjallað öllu meira um en þegar hefur verið gert. Þó skal því bætt við, að kirkjan íslenzka er háð ríkisvaldinu, og ríkis- valdið háð kirkjunni. Kirkjan er háð ríkinu vegna þess, að það tekur að sér að vernda hana og styðja, kosta menntun starfsmanna hennar, taka þátt í kirkjubyggingum og öðrum kostnaði og ákvarða tekjur hennar. Hins vegar er svo ríkið háð kirkjunni í og með, að það tekur þessa aðstoð að sér, og getur ekki hlaupist undan þeim skuldbindingum nema með því að breyta stjórnarskránni. Eins og ég hefi þegar nefnt þá er aðskilnaður ríkis og kirkju langt frá því að vera einfalt mál, bæði vegna þeirra flóknu eignaskipta, sem þá kæmi til, og eins vegna hins menningarlega vanda, sem það mundi skapa. Það væri full Þ°rf á að ræða þetta síðara atriði langtuF1 nánar, en hér verður aðeins getið °r' fárra atriða, sem hafa verður í huga þegar rætt er um menningarvanda vegna aðskilnaðar ríkis og kirkjm Jafnframt sýna þessi atriði væntanleð3 einn flöt á stöðu kirkjunnar í íslenzku þjóðfélagi. Boðskapur og starf kirkjunnar í nseT þúsund ár hefur haft ómælanleg éhh á þjóðlíf, hugsunarhátt, afstöðu verðmætamat. Kirkjan er svo náteny öllu þjóðlífi, menningararfi, hversda9s legum viðhorfum, að ekki verður me einföldum hætti skorið á þessi tenð ^ án þess að komi til alvarlegs menn ingarrofs. Nú er ekki þar með s39g að aðskilnaður ríkis og kirkju þurf' leiða til slíks menningarrofs, en verður að hafa hugfast, að sjálfur a^ skilnaðurinn er bað sem ég tel, SjálfsU lenð' muni hafa mest áhrif á fólk, sj staðreynd, að ríkið styður ekki ur kirkjuna sem stofnun, sem he rfur nð' nn3 verið tengd því um aldaraðir. Kenm in og afstaða einstakra starfsman^ kirkjunnar, bæði geistlegra og {j þeirra, sem standa að einhverju . undir starfi innan safnaðanna, mu fá nýja vídd. .,n. Ég vil halda því fram, að aös^ aður ríkis og kirkju mundi veikje stöðu kirkjunnar, fjárhagslega, h1. n ingarlega og hvað snertir a° ° meðlima hennar innan hennar. an sem stofnun í nánum tengslljrT1triljr ríkið er í eðli sínu allt önnur st0 gS en sú, sem starfar óháð og an bakhjalls, sem ríkisvaldið er. 284

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.