Syrpa - 01.04.1917, Side 41

Syrpa - 01.04.1917, Side 41
SYRPA, 1. HEFTI 1917. 39 ANNAR KAPITULI Rekstur þrælanna. Þorgils óx brátt og tók þroska miklum í Gaulverjabæ, því þar hafSi hann sjálfræSi mikiS og mátti vera sem honum bezt líkaSi. En þaS er mikils vert fyrir ungan og upprennandi svein, aS vera meS þeim, er vilja þekkja skap hans. Loftur hafSi skemtun mikla af Þorgilsi og ræddi oft viS hann sem væri þeir á sama aldri. Nefndi hann hann þá jafnan Þorgils "frænda”. “Þú hefir rétt aS mæla, frændi,” sagSi Loftur oft, er þeir ræddust viS. Kona Lofts hét Rannveig; var hún góS kona, en eigi hafSi hún haft barnalán. Var ekkert barna hennar þá á lífi, og spilti þaS eigi um atlæti hennar viS Þorgils. Og mælti Loftur þaS, aS fóstri sinn mundi verSa mikill fyrir sér. KvaS hann hann vera öran í lund og stórhuga og mætti af því marka, aS hann mundi verSa fyrir öSrum mönnum. ÞaS var og annaS í fari Þorgilsar, aS hann var aldrei á báSum áttum meS þaS, er hann vildi gjöra. Var hann skjótur til ráSa og einbeittur. Mátti af því sjá, hvernig hugur hans hneigSist. Þorgilsi var þetta ljóst sjálfum og sagSi hann Lofti hvern veg skapi sínu væri fariS. “Eg kýs eigi aS gjöra þaS, sem eg gjöri”, mælti hann, “en eg veit áSur, aS þaS hlýtur fram aS koma.” "Vel er þaS, frændi," mælti Loftur, "og er því oft svo háttaS meS afreksmenn. Mundir þú og gjöra þaS, er þú vildir fram- kvæma, þótt þaS kostaSi þig lífiS og þótt þú vissir, aS þú yrSir lífiS aS láta?” Þessu svaraSi Þorgils engu, því enn hafSi hon- um eigi til hugar komiS, aS hann mundi eitt sinn deyja sem aSrir menn. ASrir menn dóu; sumir urSu sjódauSir sem faSir hans, aSrir voru vegnir sem hesturinn Illingur, en eigi gat hann látiS sér í hug koma, aS hann mundi sjálfur deyja. Þorgils varS fullra níu vetra aS aldri áSur en Loftur yrSi þess fullviss, aS hann mundi afla sér orSstýrs. Var hann þá orS- inn stór og sterkur og vænn yfirlitum sökum hraustleiks síns. ÞaS var einn dag, aS Loftur og þrælar hans sex bjuggu sig út í fiskiróSur. ÆtluSu þeir út fyrir eyjar til fiskjar og verSa daginn og nóttina burtu. En er þeir voru albúnir, gat Loftur hvergi fariS. BaS Þorgils þá aS mega fara í hans staS og kvaSst hann geta róiS á móti hverjum þeirra sem væri. Loftur leyfSi honum aS fara. Þetta var síSla sumars og veSur miSlungi gott, er úr landi var fariS, og versnaSi er þeir voru nokkuS komnir frá landi, og gekk þá á meS kastbyljum. Þeir lögSust samt viS stjóra á góSu

x

Syrpa

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.