Syrpa - 01.04.1917, Side 71

Syrpa - 01.04.1917, Side 71
SYRPA, 1. HEFTI 1917. 69 þau, er þeir áttu eftir, en eigi var þaÖ nægur vetrarforSi; höfðu þeir af engu nóg nema mjöS, og af honum of mikið. Allur fén- aður þeirra var dauSur og hafSi veriÖ kastaS í sjóinn. Kistum sínum höfSu þeir bjhrgaS úr skipinu. Þeir þurkuöu þang í sængur sínar og settust sícSan aÖ í skálanum. Þórey ól barn í hellinum; var þaÖ sveinn og var hann nefndur Þorfinnur. Mjög var hún sjúk og gat naumast fætt sveininn á fæÖu þeirri, er þar var aÖ fá. ÞaÖ voru samtök þeirra allra, aÖ afla fiskjar meÖan þess væri kostur fyrir ísum. Þorgils hugÖi, aÖ sá bjargræÖisvegur mundi eigi lokast, þótt vetur kæmi. Um haustiÖ öfluÖu þeir vel. Þeir gengu í fjöll svo langt sem þeir fengu komist. Sáu þeir dýr mörg álengdar og bjarndýraför í snjónum, en eigi komust þeir svo nálægt neinum dýrum, að þeir gætu veitt þau. Snjór mikill lá á fjöllunum. Jafnan þegar veður mildaði, lagðist hvít þoka yfir dali og firði, og gátu þeir þá ekkert komist brott frá skál- anum. Vetur sá var harður og gengu yfir þá óhöpp mörg og slys; og skal hér sagt frá hinum verstu. Eigi eru allir menn jafn vel við vandræðum búnir, taka sumir þeim með jafnaðargeði og gefast eigi upp þótt í raunir ræki. Þorgils var þann veg skapi farinn; hann var maður trúaður og gat vel stjórnað sínum mönn- um, sökum þess að hann hafði góða stjórn á skapi sínu. Öðru vísi var skapi Jósteins farið. Hann var glaðsinna, þegar alt lék í lyndi, en kviklyndur, þegar í raunir var komið; hafði hann jafnan tekið hverju sem að höndum bar með stórgeðja dirfsku. Vissi hann nú ekkert betra ráð til að örfa skap sitt, en að- eta og drekka það er hann gat. Kona hans var engu minni fyrir sér; hafði hún karlmanns burði, en skap og þor sem kona. Át hún og drakk sem karlmaður, og var hávær og deilugjörn. Gekk mjög á ýmsu þeirra megin í skálanum. Var þar stundum gleð- skapur og stundum ógleði; deildu þau stundum, en voru hvort öðru blíð aðrar stundir. Sátu þau og menn þeirra oft að drykkju fram á miðjar nætur og gátu eigi farið út að afla vista að morgni. Gekk Þorgilsi og hans mönnum betur að afla fiskjar, svo að oft hefðu þau Jósteinn ekki haft neitt að kvöldi, ef Þor- gils hefði eigi gefið þeim til jafns við sig af sínum feng. Eftir því sem vandræði þessi uxu, versnaði skap Jósteins. Reiddist hann, ef Þorgils bauð honum eigi af sínum afla, eða ef Þorgils vítti hann fyrir háreysti þá, er hann leyfði í sínum hluta skálans um nætur; reyndi hann og að gjöra Þórarinn fráhverfan Þorgilsi,

x

Syrpa

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.