Syrpa - 01.01.1922, Page 8

Syrpa - 01.01.1922, Page 8
6 SYRPA finna mig. Við töluðum saman í borðstofunni nokkra stund, og á meðan gekk Mabel sem snöggvast um stofuna. O’Brian lét sem kann tæki ekki eftir henni. En þegar hann var að leggja af stað heim, sagði hann við mig fyrir utan dyrnar: “Eg sé að dálítil dúfa hefir flogið inn í þetta hús ykkar og eg sé það á nefinu, að hún hefir ekki komið frá fslandi.” “Áttu við 'Stúlkuna, sem kom inn í stofuna til okkar áð- an?” sagði eg. “Já,” isagði O’Brian. “Hvað heitir hún annars”? Eg 'sagði honum nafn stúlkunnar, og gat eg þess, að hún væri skozk, ætti engan að, og að hún ynni á þvottahúsinu Albion. pað var alt, sem eg vissi um hana. O’Brian klóraði sér undir hökunni og varð hugsi fáein augnablik. “Einkennileg stúlka þetta,” sagði hann alt í einu. “Hún ber á sér snið þeirra kvenna, sem um langt skeið hafa tek- ið þátt í harmleikum á leiksviði í stórborg.” “pú ert æfinlega svo spaugsamur, herra O’Brian,” sagði eg. “Eg er samt ekki að spauga núna, sonur minn góður,” sagði O.Brian og setti á sig mikinn alvörusvip. “Eg skal segja þér nokkuð. Eg sá einu sinni stúlku, sem var svo lík þessari ungfrú Cameron í sjón og vexti, að tvær stúlkur geta ekki verið líkari hvor annari. — pað var á írlandi fyrir mörgum árum.” “Var hún líka skozk?” “Já, hún var skozk og hafði leikið hefðarfrú í einum af harmleikum Shakespeares um mörg ár.” “ÍHvað hét hún?” “pað man eg ékki. Hún kom til Norður-frlands einn góðan veðurdag og dvaldi þar um hríð. Tæpum mánuði eft- ir að hún kom þangað, voru allir yngismenn horfnir þaðan og komnir suður á syðsta odda landsins. Ekki höfðu þeir samt lengi verið þar, þegar þessi skozka leikmær var komin þangað suður með plögg sín og kvaðst mundi dvelja þar eitt ár eða tvö. — En þá stukku allir yngismenn þaðan og norður á landsins enda, og lifðu þar á hráum skelfiskum eins og skrælingjar.” “Voru þeir svona hræddir við stúlkuna?” spurði eg. “Eg þori ebkert um það að segja, sonur sæll. En eitt- hvað hefir það verið, sem rekið hefir drengina á flótta.” Og gamli O’Brian kvaddi mig með handabandi og lagði á stað heim. — Eg heyrði að hann raulaði fyrir munni sér, eins og hann var vanur. Og var vísan á þessa leið: —

x

Syrpa

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.