Syrpa - 01.01.1922, Síða 18

Syrpa - 01.01.1922, Síða 18
SYRPA 16 um musteri Salómons, eða Rómverjum um “Colosseum”, heldur en okkur fslendingum um “Félagslhúsið” okkar í Wnni- peg. pangað fóru Winnipeg-íslendingar, á fyrstu árum sínum þar í borginni, til þess að skemta sér og fá fréttir og fróðleik. par voru oft fluttar snjallar ræður, og menn kappræddu þar á stundum ýms mál með töluverðu fjöri, en þeir héldu sér jafnan við málefnið og forðuðust persónulegar deilur. par söng iðulega sá söngflokkur, sem eg heí'i heyrt fegurst syngja; þar voru nokkrum sinnum sýndir góðir og skemti- legir sjónleikar; guðsþjónustur fóru þar fram á helgum; sunnudagsskóli stóð þar með miklum blóma u-m langt skeið, og barnáskóli heilan vetur. Áður en íslenzk kirkja var reist í Winnipeg, var hús þetta uppljómað eins og framast mátti verða á hverri einustu jólanótt og börnum og fullorðnum gefnar góðar gjafir. Og í þessu húsi var oft og mörgum sinnum leitað samskota handa bágstöddum. — pað var því ekki kyn, þó okkur íslendingum þætti vænt um hús þetta, dkki sízt vegna þess, að það var verulegt þrekvirki af íslend- ingum á þeim dögum, að koma upp slíku húai, íþegar hvert einasta cent, sem þeir eignuðust, kostaði súran sveita og sár- ustu erfiðismuni. — pað var drenglundað og mannvænlegt fólk, sem ko>m saman í Framfarafélagshúsinu á Jemima- stræti. pað var góðgjörða-fólk í orðsins fylstu merkingu. pað voru menn og konur, sem fyrir margra hluta sakir má telja með því allra bezta og nýtasta fólki, er nokkurn tíma hefir fluzt til Canada. Aldrei voru fleiri samkomur haldnar í Framfarafélags- húsinu en árið 1886. Mér er ein þeirra sérstaklega minnis- stæð fyrir þá sö'k, að þá sá eg í fyrsta sinni þann mann, sem alment var nefndur íslendingurinn gangandi, eða maðurinn sí-gangandi. pað var, að mig minnir, um miðjan Septem- ber. Og þessi dularfulli maður var þá nýkominn til Man- itoba, hafði komið fótgangandi alla leið sunnan frá Minne- apoli's og hélt til á einu dýrasta hótelinu i Winnipeg. Hann var að sjá rúmlega fimtugur að aldri, stór vexti og kraftaleg- ur, dökkur á brún og brá, með skegg á vöngum, en rakaða höku og efrivör, og var ekki ósvipaður hraustum og heilsu- góðum Háskota. Hann var fslendingur í húð og hár — á því var ekki hinn minsti vafi — en enginn vissi, hvaðan af ís- landi hann var, eða hve nær hann kom til Amerí'ku. Og enginn vissi heldur með áreiðanlegri vi'ssu, hvað hann hét. Hann nefndi sig John Island, og bar Island fram sem Æland, En sumir þóttust hafa heyrt, að hann héti réttu nafni: Jón Jónsson, væri ættaður af Homströndum, hefði farið á unga aldri í siglingar og verið kominn alfluttur til Ameríku fimm
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Syrpa

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.