Syrpa - 01.01.1922, Qupperneq 70
68
SYRPA
þá fimm hundruð dali, sem Madeleine Vanda átti að fá, og
allan kostnað i sambandi við það,. að ná út þeim peningum,
er bankabók Hálfdanar ávísaði. — O’Brian fékk lögfræðing
einn í lið með sér til að ná út peningum Arnórs, og gekk það
alt bæði fljótt og vel, og var því öllu lokið nokkru fyrir jól.
Og voru þau Arnór og Edna búin að koma öllum sínum pen-
ingum á banka í Minneapolis daginn fyrir aðfangadag jóla
1886. Og hefðu þau mátt ráða, þá hefði fullur helmingur
þessara peninga farið til okkar þriggja: O’Brians, herra
Islands og mín. En þeir herra Island og O’Brian tóku það
skýlaust fram, daginn, sem fjársjóðurinn fanst, að það mætti
aldrei nokkurn tíma bjóða þeim neitt af þessu fé, því að þeir
mætíu ekkert af því þiggja, hvorki sem gjöf né laun. En
vináttu þeira Ajrnórs og Ednu kváðust þeir glaðir þiggja —
Affcur á móti tók eg oft og einatt við stórum gjöfum frá Arn-
ári og Ednu. Frænka mín fékk tvö hundruð dali í jólagjöf
frá Al'nóri. Og Edna sendi Mabel Cameron tvöhundruð dali í
janúarmánuði 1887. Ef til vill hefir hún l'íka sent móður-
systur sinni, henni frú Colthart, stóra peninga-gjöf, þó eg
yrði þess ekki var. Og það er áreiðanlegt, að peningar þeirra
Arnórs og Ednu glöddu margan fátækan bæði fyr og síðar.
— Arnór stundaði nám við háskólann í Minnesota af mesta
kappi, og útskrifaðist sem læknir vorið 1888. Skömmu síðar
voru þau, Edna og hann, gefin saman í hjónaband. Og þá
um sumarið fluttust þau til Brooklyn og settust þar að fyrir
fult og alt. Komst hann þar brátt í gott álit sem læknir, því
að hann stundaði starf sifct með miklum áhuga og samvizku-
semi. Hepnaðist honum oft sérlega vel að lækna taugasjúk-
dóma, og mátti heita, að hann væri sérfræðingur í þeirri
grein. Hann var sérstaklega góður við alla, sem fátækir
voru og bágt áttu. Systur sinni sendi hann heim peninga
árlega. Og öllum vildi hann gott gjöra. — Edna varð bú-
sýslu-kona hin mesta, en um leið gestrisin og góðgjörðasöm.
Og var samlíf þeirra hjóna hið elskuverðasta, sem hugsast
gat. Heimili þeirra var mjög skemtilegt og á góðum stað í
borginni, þar sem útsýni var fagurt og tilkomumikið. par
dvaldi eg tvívegis í góðu yfirlæti — tveggja mánaða tíma í
hvort sinn — og hefi eg aldrei átt betri daga. —Sumarið 1912
dó Arnór sviplega mjög úr hjartabilun. En Edna er enn á
lífi (í Feb. 1921). pau eignuðust fjögur börn: tvo sonu og
tvær dætur, og eru þau nú öll uppkomin, öll gift, vel metin og
í góðum efnum. — Eg vil geta þess hér, að þau Arnór og
Edna gáfu mér fult leyfi, haustið 1909, til þess að skrifa um
leit þeirra eftir fjársjóðnum, og gáfu þau mér til ævarandi
eignar bréfin tvö, sem Hálfdan skrifaði, og eins dagbókina