Syrpa - 01.01.1922, Page 73

Syrpa - 01.01.1922, Page 73
SYRPÁ 71 herbergin uppi á loftinu, meðan Sólrún bjó 'þar. En þegar hún fór burt úr húsinu alfarin, var hætt að verzla þar. Tók þá trésmiður, Williamson að nafni, alt húsið á leigu. Hafði uann smíðastofu sína niðri og bjó uppi á loftinu. En árið 1905 seldi O’Brian húsið og lóðina og græddi stór-fé á þeirri sölu. pá var þetta gamla, afskekta, skakka hús rifið niður til grunna, og önnur veglegri bygging sett þar upp í stað- inn.------------ Um Björn (borðmann Sólrúnar) hefi eg það að segja: að hann var einn þeirra manna, sem lögðu á stað í gull-leitina —til Yukon—í marzmánuði 1898. ]?ótti hann maður með mönnum í þeirri ferð. Bjargaði hann tveimur mönnum úr snjóflóði í Chilcot-klifi, en var sjálfur næstum druknaður í La Barge-vatni. Komst hann loksins til Dawson-bæjar, og vann þar við námugröft og skógarhögg í tvö ár. Var hann ekkert ríkari, þegar hann kom aftur til Winnipeg, en þegar hann fór. Sagði O’Brian honum þá, að hann hefði farið of langt tii að leita gullsins, því að bezta og auðugasta gullnám- an væri hérna í Manitoba, á sjálfri gras-sléttunni. Alt, sem gjöra þyrfti, væri það, að plægja jörðina og sá í hana hveiti- korni, og myndi þá gullið fljótt koma í lófa manns. — Björn brá við skjótt, nam gott akuryrkjuland langt úti á sléttunni, plægði og sáði og uppskar, og plægði og sáði aftur. Svo kvæntist hann, eignaðist sonu og dætur og kom þeim til menta. Hann keypti stóra spildu af bezta hveiti-landi, varð stór-bóndi, og mikils metinn, og hann komst að því að lokum, að hann hafði fundið auðuga gullnámu—hafði fundið liinn lolgna fjársjóð, er náttúran ætlar hverjum ungum manni, sem hefir hug og dug til að leita hans réttilega.---------- Herra Island (eða Jón Jónsson, eða hvað hann hét), sem kallaður var íslendingurinn gangandi. fór burtu úr Winnipeg stuttu eftir að fjársjóðurinn fanst. Tveimur árum síðar var hann á ferð í Oregon og California, og var sagt, að hann hefði farið fótgangandi yfir Klettafjöll. — ólíkur var hann í flestum Gyðingnum gangandi, að minsta kosti þeim gang- andi Gyðing, sem Eugene Sue (hinn frakkneski) ritar um. Iívar sem sá Gyðingur steig fæti sínum, sást krossmark (f) eftir sjö nagla í sólunum á skóm hans. Og fylgdi honum jafnan óáran, hungursneyð, drepsótt og ógæfa. — En íslend- ingnum gangandi var öðruvsi farið. Hvar sem hans fótaför lágu, þá spruttu þar upp hin fegurstu og sætustu blóm. Hann flutti með sér ljós og yl; og öllum varð það til ham- ingju og ánægju, að kynnast honum. — Hann var borgari Bandaríkjanna og var lengst af á ferð um Ný-Englands ríkin, og mun hafa átt heima í Boston. Hann sást suður á Kúba,

x

Syrpa

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.