Vekjarinn - 01.10.1904, Side 24
24
bráðlega að heimsækja okkur og samgleðjast. yfir
hamingju minni. Þin innileg vinstúlka
Margrjet Jónsdóttir
Hólmi 1. marz 1907
Elsku vinstúlka mín!
Jeg varð heldur en ekki hissa á frjettunum,
sem þú sagðir mjer í síðasta brjefi þínu, og jeg get
ekki sagt, að jeg yrði beinlínis glöð. Þú mátt ekki
verða reið við mig, þótt jeg sje svona berorð, en
jeg get ekki annað, og þú getur heldur ekki búizt
við öðru af vinstúlku þinni, en að hún sje hreinskil-
in við þig. Kæra systir í Drottni, jeg bið fyrir þjer
meira en nokkru sinni fyr. Mjer finnst þú þurfa
svo mjög náðar Drottins. Þú hefir ráðist í mikið
og jeg er svo hrædd um, að þú komir engu til loið-
ar, en hafii’ sjálf stórtjón af því. Jeg hefi opt sagt
þjer mina skoðun á slikum trúlofunum, þar sem
annað hjartað er gagntekið af Guði, en hitt af hje-
góma eða synd. Það er undarlegt að nokkur skuli
imynda sjer, að svo ólik hjörtu geti verið samlynd
og runnið saman í einn vilja til iengdar. — Ætti
jeg að bindast tryggðum við nokkurn mann, yrði
hann fyrst og fremst að vera samhuga mjer í helg-
asta máli hjarta míns, annars gæti jeg ekki notið
neinnar varanlegrar gleði með honum, og hvað
vænt sem mjer þætti um hann, skyldi jeg aldrei
játást hopuin, nema jeg væri sannfærð um að