Vekjarinn - 01.10.1904, Síða 40
40
tryggt hvert annað. Ætli að það geti nú ekki ver-
ið að hana rámi í sannleikann; en það borgar sig
ekki fyrir þig að eltast við hana. Jeg hjelt, að
hjerna væru nógar stúlkur, sem fegnar vildu verða
kaupmannsfrú, svo þú ert í engu hraki. Og hvað
sem því líður, þá reyndu að reka brott þessar trúar-
grillur; þjer er heldur ekki til neins að prjedika
fyrir mjer, jeg er of forhertur til að hlusta á það.
— Mundu eptir þvi, að ef þú flytur þennan trúar-
ofsa með þjer hingað, verður þú að athlægi meðal
stjettarbræðra okkar hjer. Þinn einl.
Hermann Sveinsson,
Reykjavík 6. maj 1912.
Fröken María Magnúsdóttir Hólmi!
Jeg flyt yður sorgarfregnir með þessu brjefl.
Frú Margrjet Sveinsson, vinkona yðar, varð ekkja i
gær. Maðurinn hennar var kominn í óbotnandi
skuldir, og allar eigur þeirra beggja seldar eða marg-
veðsettar. Siðustu árin var hann í sífelldum pen-
ingavandræðum vegna eyðslusemi sinnar, og var
hann þá opt svo skapstyggur við konu sína, að
henni var naumast viðvært. Hann kenndi henni
um, að hún hefði ekki áminnt sig rækilega meðan
þau voru nýgipt, en sagði, að nú væri ofseint að
snúa við.
í gærmorgun mætti hann dreng suður á
melum, sem hann bað fyiir brjef til konu sinnar,