Nýjar kvöldvökur - 01.07.1930, Síða 13

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1930, Síða 13
STAKSTEINAR 105 Guðmundui' var látinn sofa í baðstofunni í því eina rúmi, sem þar var. í bíti morguninn eftir fór Randver gamli með Guðmundi á beitarhúsin, til þess áð setja hann inn í starfið. Húsin stóðu í dalsmynnmu, austan í lágum ási, sem náði alveg ofan að ánni; neðan við ásinn var dálítið langt og mjótt stöðu- vatn, sem náði riorður að fjallsrótum; hét það Seljavatn og var beitarlandið í kmnungunum fram með því. Randver sagði Guðmundi fyrir um alla fjárgeymsl- una eins og hann hafði verið vanur að haga henni, og komu þeir ekki heim aft- ur fyr en í myrkri um kvöldið. Guðmundur hafði búist við að sér mundi leiðast í fámenninu í Dældum. En það fór á allt annan veg; bæði fólkið sjálft og allt atlæti þess við hann féll honum svo vel í geð, að hann var harð- ánægður. Randver var æfinlega samur og jafn, nokkirð sigalegur og seinmæltur, en svo vingjarnlegur, að Guðmundur hafði aldrei haft svo góðan húsbónda. Hann hafði ekki vanist neinni kurteisi í tiltali af þeim, sem hann hafði unnið hjá um dagana. Skipanir og fyrirmæli höfðu ver- ið svo sem svona: »Gvendur, mokaðu þarna þetta eða hitt«, eða: »Gvendur, hertu þig nú að róa«. Honum leiddist að vera kallaður Gvendur, og enn verra var Það, ef það varð Gvöndur, og út yfir tók Þegar hann var kallaður Guddi, eins og stundum kom fyrir. En ávörp Randvers voru ekkert þessu lík. Annan daginn, sem Guðmundur gekk á beitarhúsin, hafði handver sagt við hann: »Ekki vænti eg, Guðmundur minn, að eS mætti biðja þig að fara með litla sleð- aun með þér á húsin og koma með tað- f|ögu í poka, þegar þér finst færið nógu Sott til þess«. Munur var nú á ávarpinu! Gamla konan var svo þaulsætin á rúmi sínu og fyrirferðarlítil á heimilinu, að þess gætti varla að hún væri til. Jóhannes Randversson var stór og myndarlegur maður, liðlega þrítugur. Líkur var hann föður sínum í fasi, nerna hvað hann var skrafhreifnari; stafaði það að líkindum nokkuð af því, að hann var mjög bókhneigður maður, átti tölu- vert af bókum og las í öllum sínum töm- stundum. Hafði Guðmundur mikla á- nægju af að sitja hjá honum á kvöldin og spjalla við hann, og þar komst hann upp á að lesa sér til gagns og' gamans. Var engu líkara en að nýr heimur opnaðist fyrir honum, þegar hann fór að lesa hverja bókina á fætur annari: íslend- ingasögur, tímarit, kvæði og annan skáld- skap, sem Jóhannes átti í skáp sínum inni í litla húsinu. Það fann Guðmundur, að Jóhannes stóð honum langtum framar í öllu andans atgerfi, en Jóhannes lét það aldrei í ljósi í orði né verki og því var Guðmundur óvanur. Allir jafnaldrar, sem hann hafði kynst, höfðu látið hann kenna á því, ef svo var. Og þá stóð ekki Una að sínu leyti hin- um að baki. Hún var æfinlega boðin og búin til að gera allt fyrir hann. Hún fór á fætur á undan honum á morgnana, bar honum mat og kaffi og stakk svo í vasa hans tveimur flatbrauðskökum með smjöri og þykkum kæfusneiðum. — Þeg- ar hann kom heim á kvöldin, lét hún hann fá þurra sokka, og ef hann var votur í fætur,' kom hún með volgt vatn í fati, þvoði honum og þurkaði vandlega. Guð- mundur kunni ekki við að hún krypi á kné fyrir sér og væri að þvo honum, og í fyrsta skiftið mótmælti hann því harð- lega og sagði: »Nei — blessuð Una, vert þú ekki að þvo mér; eg held eg sé ekki of góður til þess sjálfur«. »Hva-að? Eg held eg geti þvegið þér, 14

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.