Nýjar kvöldvökur - 01.07.1930, Qupperneq 16

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1930, Qupperneq 16
108 NÝJAR KVÖLDVÖKUR og beint um mörg ár; var það vel farið, því að hún var fullum fimm árum eldri éii Guðmundur. Nú sveif hún léttfætt um hús og göng, hætti alveg við gömlu uppá- haldslögin sín, en söng í þeirra stað með gleðihreim: »Eg elska hlíð og hól« o. s. frv. Svona leið fram eftir vetrinum. Jó- hannes var óðum að styrkjast í fætinum, svo að á miðþorra var hann farinn að róla út og inn um bæinn. Um það leyti var féð rekið heim af beitarhúsunum og í þorralok tók Jóhannes við fjárgeymsl- unni aftur. Fór þá Guðmundur að hugsa til heimferðar, því að hann var ekki leng- ur nauðsynlegur í Dældum, en hinsvegar nóg að starfa heima í Nausti. — Sunnu- daginn fyrstan í Góu kvaddi hann fólkið; Una gekk á leið með honum út á veginn og kvaddi hann þar með mörgum tárum. Guðmundur var hressari í huga en hún og bað hana að láta sér ekki leiðast, hann mundi koma fljótlega aftur að finna hana. En þegar hann var orðinn einn og tróð brotann inn Ströndina, fannst hon- um samt svo mikið til um skilnaðinn við Unu, að hann settist á stein og sat þar grafkyr, þangað til fór að setja að hon- um; þá stóð upp og hélt rösklega áfram. í fjarveru Guðmundar hafði allt gengið slysalaust í Nausti. Guðrún gamla var orðin svo elsk að Boggu Íitlu, að hún mátti ekki af henni sjá og barnið kunni svo vel við sig í Nausti, að hún kærði sig ekkert um að fara heim aftur. Það drógst því og drógst að hún færi og á endanum samdist svo um við oddvitann, að hún yrði kyr, þar sem hún var komin. Guðrún varð upp til handa og fóta þeg- ar hún frétti um trúlofun Guðmundar og þótti hamingjusamlega hafa til tekist; hún hafði raunar aldrei séð Unu, en hafði heyrt hennar að góðu getið, og það sá hún að hirðing og holdafar sonarins bar vott um einstaka nákvæmni stúlk- unnar. Á helginni næstu kom Guðmundur upp að Efra-Vogi, og þegar frú Valgerður frétti til hans, bauð hún honum inn til sín. Hún var með hressasta móti og spurði hann margs. »Þú varst í Dældum þenna tíma?« »Já, eg gekk þar á beitarhúsin«. »Þetta kvað vera bezta heimili og tölu- vert efnað. — Randver er mjög virðing- arverður bóndi«. »Já, þetta er gæðafólk, ■— einstakt gæðafólk«, sagði Guðmundur af sannfær- ingu. Svo mátti hann til að segja frúnni frá trúlofun sinni; blóðið hljóp fram í kinnar honum, þegar hann nefndi Unu og alla hennar mörgu mannkosti. Frúin brosti og óskaði honum til ham- ingju. Þau héldu samtalinu áfram nokkra stund, en svo sagði frúin: »Væri þér þægð í því, Guðmundur minn, að Una fengi að vera hjá mér svo sem tveggja mánaða tíma, ef hún vildi það sjálf? Það er engin stúlka hjá mér sem stendur«. Slíkt vinsemdarboð var meira en svo, að Guðmundur hefði látið sér það til hug- ar koma. Hann varð fegnari en frá megi segja og kvaddi frúna með þakklæti. Nokkrum dögum síðar lagði hann af stað til að færa Unu boðið. — Una sá fjarska mikið eftir Guð- mundi og þótti hver stundin lengi að líða. Henni þótti svo tómt og kalt inni, að húu gekk oft eirðarlítil út og inn um bæinn; daglegu verkin voru hætt að fullnægja henni og hún þráði annað háleitara starf. — Einn dag, þegar var að byrja að rökkva, sat hún við rokkinn í baðstof- unni, steig hjólið hægt og teygði úr kemb- unni; hún var að syngja þau erindi, sem henni höfðu fundist bezt sefa ókyrð sál-

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.