Nýjar kvöldvökur - 01.07.1930, Blaðsíða 18

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1930, Blaðsíða 18
110 NyJAR KVÖLDVÖKUR mjög vel. Randver hafði lagt mjög að syni sínum, en um leið og Jóhannes var einstakur skapstillingarmaður, var hann næstum því ósveigjanlegur, ef hann tók eitthvað í sig, svo að ekki varð að gert. »Nú er eg orðinn svo gamall og slit- inn«, sagði Randver, »að eg treysti mér ekki til að vera við bú lengur«. »En við Guðmundur getum tekið jörð- ina«, sagði Una með ákefð. »Það er nú einmitt það, sem eg vildi tala um við ykkur«, svaraði Randver; »en eg var hræddur um að ykkur mundi þykja þröngt í bænum, ef þið flyttuð þangað f j ögur, og svo yrðum við gömlu hjónin í húsinu, því að Jóhannes vill um- fram allt hafa sína bækistöð áfram í litla húsinu«. »Ætli megi ekki komast af með það?« sagði Una; »eg held það væri þá hægt að stækka ögn baðstofuna, ef okkur fynnd- ist alt of þröngt, — eða hvað finnst þér Guðmundur?« Guðmund var fyrir löngu farið að langa í bújörð og þótti þetta fýsilegt, svo að áður en kvöld var komið var það af- ráðið að þau flyttu öll að Dældum í næstu fardögum. Sama vorið, sem Guðmundur flutti að Dældum, hætti sýslumaður búskap í Efra-Vogi — og byggði öðrum jörðina; var hann orðinn stórríkur maður og var farinn að þrá náðugri daga. Keypti hann byggingar þær, er Guðmundur átti 1 Nausti og voru báðir ánægðir. Guðmund- ur kvaddi sýslumann daginn, sem hann fór. »Nú byrjar þú, þegar eg hætti«, sagði sýslumaður og brosti. »Það er nú hætt við að munur verði á«, svaraði Guðmundur; »það yrði erfitt að feta í yðar fótspor«. »Ojæja«, svaraði sýslumaður, »það get- ur líka meira en svo verið að það væri betra fyrir þig að þurfa ekki að feta í mín fótspor. Það var hvorki vegna bú- skaparins sjálfs né vegna auragirndar,. sem eg bjó stórt, heldur miklu fremur til þess að geta gleymt líðandi stund. — En nú er það stríðið á enda«. Guðmundur skildi, hvað sýslumaður fór; dótturmissirinn og vanheilsa frúar- innar hafði komið meira við þenna stillta mann en margur hugði. »Ef svo færi, Guðmundur, að þig van- hagaði einhverntíma um peninga í svip«, bætti sýslumaður við, »þá láttu mig vita,. áður en þú leitar til annara. — Eg held, að þér séu vel lánandi peningar«. Guðmundur var upp með sér af trausti sýslumanns, þakkaði honum ynnilega all- ar auðsýndar velgerðir og fór leiðar sinnar. VIII. Hausthéla. Guðmundur og Una hafa búið tíu ár í Dældum, þegar hér er komið sögu. Þeini hefur búnast vel, aldrei orðið fyrir ó- höppum og allt af bætt við sig fremur en hitt. Ekki hefur þeim orðið fleiri barna auðið, og það er það eina mótlæti, sem Una hefur ekki getað sætt sig við; það hefur valdið henni margri andvökunótt, en hún hefur ekki haft orð á því við aðra. Gömlu hjónin eru dáin, en Guðrún er enn furðu ern, er á fótum alla daga, rær á rúmi sínu og dundar við tóskap. — Jó- hannes hefur talið sér heimili í Dældum þessi ár, en sjaldan verið heima, heldur við smíðar úti um sveitir. -— Bogga er orðin fullorðin stúlka og hefur gengið í hjónaband á þessu vori, gift bóndasynl inni á Strönd. Það hefur verið föst regla Guðmundar að taka á hverju sumri kaupakonu allan sláttinn og dreng um fermingu til snún- inga. Þetta sumar, sem hér um ræðir, hafði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.