Nýjar kvöldvökur - 01.07.1930, Page 24

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1930, Page 24
116 NÝJAR KVÖLDVÖKUR Aftur varð nokkur þögn. »Heldurðu, að það væri ekki réttara, að hún væri þá kyr hér í vetur; — svo tækj- um við barnið; — — hún hefði sjálfsagt engar ástæður til að sjá fyrir barni«. Það datt svo yfir Guðmund, að hann reis upp í rúminu. »Er þér alvara?« »Ja, — sjáðu til,------það væri synd að láta aumingja barnið hrekjast,------ og svo eigum víð ekkert barn.-----« Síðustu orðin voru hvísluð með angur- værð. »Eg sé svo mikið eftir drengnum okk- ar, sem dó. — Svo átt þú líka þetta barn, þó að eg eigi það ekki«. Guðmundur var stundarkorn að átta sig. »Allt af ertu eins! — Það er alveg sjálfsagt, að þú ráðir þessu, alveg eins og þú vilt. — Það er allt bezt, sem þú villt — æfinlega«. »Jæja, góði; eg held að þetta sé rétt- ast, þá gerum við engum órétt. — Eg skal tala við Borgu um það á morgun«. Guðmundur viknaði við og gat ekki sagt neitt. Hann greip um hönd Unu og þrýsti hana fast. — Þannig láu þau þegj- andi nokkra stund. — Klukkan sló þrjú. »Þú borðaðir ekkert í kvöld«, sagði Una; »heldurðu að þú gætir ekki borðað eitthvað núna? Það er verst að það er orðið alveg kalt á diskinum og mjólkin . líka«. Guðmundur var farinn að kenna sárr- ar svengdar og varð matnum feginn. Una fór fram úr og kveikti ljós. Guðmundur borðaði það, sem á diskinum var og drakk alla mjólkina úr könnunni. — Una kom aftur upp í. »Þér er kalt; það er annars von, mjólk- in verður svo ísköld af að standa; hérna er trefill, — og breiddu nú vel ofan á þig«. Hún hagræddi sænginni, sléttaði úr henni og bauð svo Guðmundi góða nótt með kossi. Hann hallaði sér út af aftur. Nú var hann alveg rólegur og ókvíðinn. Mikil dæmalaus, einstök kona var hún Una! Hún mátti sannarlega ekkert aumt sjá. Hvar sem hún sá einhvern hryggan, kaldan eða svangan, þá var sama hvernig á stóð, — allt af var hún eins. Hjónin sváfu vært fram á morgun. Borga var kyr í Dældum um veturinn. Á uppstigningardag, vorið eftir, fædd- ist drengur, sem spriklaði og grenjaði eftir öllum listarinnar reglum. Mánuði síðar var Borga orðin alheil heilsu og komin fram í Dali. Drengurinn varð eftir og dafnaði vel. Hann var skírður Þorleifur. IX. Vegfarandi. Fimmtán ár ,eru liðin síðan seinast. Við hittum Guðmund frammi á beitar- húsum síðla dags, þrem nóttum fyrir jól. I-Iann er að byrgja féð, bindur hurðirnar fast aftur og treður ló í hverja rifu; hann býst auðsjáanlega við vondu veðri. — Hann er nokkuð farinn að reskjast, er orðinn holdugri og seinlegri í hreyfingum en áður, en hraustlegur maður er hann að öðru leyti; hærur sjást í vöngum, en andlitið er furðu- unglegt og rakaður er hann um varir og vanga. Dagana á undan hafði verið hláka; snjó hafði leyst, svo að rautt var að mestu niður um, en þó skaflar í dældum öllum. Þenna morgun hafði verið kyrt veður og frostleysa, en þegar leið á daginn, fór að syrta að af norðri og heyrast veðurhljóð í fjarska. Guðmundur vildi því ganga sem bezt frá beitarhúsadyrunum. Hann

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.