Nýjar kvöldvökur - 01.07.1930, Qupperneq 25

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1930, Qupperneq 25
STAKSTEINAR 117 -'staldraði við á stéttinni og leit til veðurs; það var að byrja að skyggja og élin voru að byrgja norðurfj öllin; veðurhljóðið í'ærðist óðum nær. Hundur Guðmundar, sem flatmagað hafði við húsvegginn, stökk allt í einu upp og spángólaði hvað ^eftir annað. »Þegiðu seppi!« Hundurinn þagnaði snöggvast, en svo ‘teygði hann trýnið upp aftur og spángól- •aði lengi. Guðmundur skimaði í sömu átt •og hundurinn sneri sér; honum datt í hug, að einhver væri ef til vildi á ferð norður heiðina gagnvart beitarhúsunum. Heiðin var ekki fjölfarin orðin, síðan sýsluvegurinn var lagður utan heiðar, en þó var það nokkuð algengt, að þeir, sem leið áttu úr Austurdölum á vetrum, færu 'hana. Heiðin var talin fjögra stunda gangur, en sex stunda gangur milli bæja. ■Guðmundur horfði lengi yfir í heiðina og hom loks auga á lítinn, svartan díl, sem hreyfðist hægt niður stóran fannfláka uppi undir brún. Þar hlaut að vera mað- irur á ferð. — Guðmundur ákvað þegar að bíða mannsins, bæði vegna þess að farið var að skyggja og útlit var fyrir stórhríð, og svo þurfti þessi aðkomumaður að fara yfir Dalsá skammt fyrir neðan beitarhús- in. Áin var auð eftir hlákuna, en góð ís- spöng yfir hana aðeins á einum stað. Það rökkvaði óðum á meðan Guðmund- ur gekk ofan að ánni; þar settist hann við stóran stein og beið. Honum taldist svo til, að ferðamaðurinn mundi koma að ánni að svo sem hálfum tíma liðnum, •eftir vegalengdinni að dæma. Það dimmdi æ því meir sem lengur leið og fór að slíta snjó úr loftinu, en kyrt var enn þá að mestu. Guðmundur beið og beið lengi, þar til er aldimmt var orðið af myrkri og kafaldi, og var farinn að halda að sér hefði missýnst, en þá stökk hundurinn allt í einu upp og gelti og um leið heyrði hann að gengið var seinum og þungum skerfum í skriðunni hinumegin við ána. Hundurinn espaðist þá enn meir og gelti í ákafa. »Er nokkur þar?« var kallað dimmum rómi handan yfir ána. »Já«, kallaði Guðmundur á móti; »farðu svolítið lengra út með ánni, þar er ísspöng yfir hana«. Guðmundur hljóp út að spönginni og beið þar komumanns. »Komdu hérna, spöngin er hérna«. Eftir litla stund kom maður yfir um til hans, stór vexti, með tösku mikla bundna á bak sér. »Komdu sæll«. »Komdu sæll«. Þeir tókust í hendur. Það var svo dimmt orðið, að þeir sáu ekki hvor fram- an í annan. »Hvað heitir maðurinn?« spurði Guð- mundur. »Eg heiti Jón«. »Og kemur hvaðan?« »Úr Austurdal«. »Og ætlar hvert?« »f Sandvog. Er eg á réttri leið ?« »Já, þú ert það. Ertu annars orðinn þreyttur?« »Já, eg er uppgefinn orðinn. Færðin er afleit sunnan til á heiðinni, svo að eg varð sveittur og þyrstur í dag og gerði þá vitleysu að þamba kalt vatn hvað ofan í annað, en það er eins og það hafi gert mig alveg máttlausan. Eg held eg megi til að tylla mér niður«. Hann settist á þúfu. »Ert þú frá Dældum?« »Já, eg er bóndinn í Dældum«. »Og heitir?« »Guðmundur«. Komumaður blés við og þurkaði af sér svitann. »Þú ætlar í Voginn, — ertu kunnugur þar?«

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.