Nýjar kvöldvökur - 01.07.1930, Blaðsíða 29

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1930, Blaðsíða 29
STAKSTEINAR 121 »Eg held þú ættir að senda hann í skóla, t. d. gagnfræðaskóla«. Um þetta töluðu þeir lengi fram og aftur. Guðmundi þótti þessi uppástunga íhugunarverð og efni kvaðst hann hafa nóg til að kosta hann. Una kom inn til þeirra nokkru seinna og gaf sig inn í tal þeirra. Hún komst öll á loft, þegar hún heyrði, hvað þeim bar á góma, og það kom þeim öllum saman um, að þetta þyrfti að athuga vel frá öllum hliðum. Dagana á eftir var rökrætt og bolla- lagt og að lokum var það ákveðið, að Jón átti að vera kyr yfir jólin í Dældum, vera um nýárið hjá frændfóiki sínu í Vogin- um, koma svo aftur og segja Þorleifi til fram undir vorið, svo að hann yrði sæmi- lega búinn undir skólanámið. Jón kunni mætavel við sig í Dældum. Þar naut hann friðar og góðrar aðhlynn- ingar eftir flæking og basl hálfrar æfi sinnar. Þorleifur og hann urðu mestu mátar og úr því að Jón var vinur bæði Guðmundar og Þorleifs, þá var svo sem ekki að spyrja að því, hvernig Unu var til hans. Jón var þar frá nýári og fram á sum- armál og sagði Þorleifi til. Eftir það tók hann að sér utanbúðarstörf við verzlun eina í Voginum. X. Lokaþáttur. Á Þorláksdag, árið eftir, kom Jón Daða- son að Dældum; hjónin höfðu lagt fast að honum að vera þar um jólin. »Nú er koma mín hingað öllu höfðing- legri en í fyrra«, sagði Jón, þegar hann hafði heilsað Guðmundi á hlaðinu; »eg er ríðandi eins og þá, en hef bæði hnakk og beizli og þarf hvorki að láta teyma undir mér eða bera mig inn í bæinn«. »Vertu velkominn«, svaraði Guðmund- ur og leiddi hann til baðstofu. Þegar leið á kvöldið, sagði Jón: »Það er gamall og góður siður að halda hátíð hins heilaga Þorláks með því að hressa upp á sálina. Eg hef raunar ein- sett mér að hætta að drekka, en á hátíð eins og þessari finnst mér ekkert að því að gleðjast með góðum vinum. — Ekkert þykir mér eins gott og whisky-tár í sóda- vatni; það þarft þú endilega að reyna. Um daginn, þegar »Lagarfoss« kom á Voginn, efndi Jón systursonur minn gam- alt loforð og laumaði að mér einni flösku, — hann vissi, hvað mér kom, blessaður drengurinn. Eg tók hana með mér og nokkrar pelaflöskur af sódavatni. Svo förum við inn í litla hús og vottum sóma- karlinum Þorláki virðingu okkar með því að drekka skál hans«. Guðmundi þótti gaman að bragða vín, þótt aldrei drykki hann sig kenndan. Settust þeir að föngunum og gerðust skrafhreifnir. »Hvað er að fi’étta af Þorleifi okkar?« spurði Jón. »Hann skrifaði nýlega og lét vel af skólaverunni; honum þykir gaman að vera á Akureyri og kann vel við sig þar. Svo bað hann náttúrlega að heilsa þér«. »Guð blessi hann! Eg vona að allt snú- ist honum til hamingju, — þetta er svo góður drengur«. Guðmundur var hinn ánægðasti með skólanám sonar síns, sagði sem var, að þau hjónin söknuðu hans mikið, en um það væri ekki að fást, úr því að ástæðurn- ar krefðust þess. Þeir dreyptu öðru hvoru á glösunum; Jón fór að verða rjóður í kinnum og vot- eygður; hann varð seinmæltari og fast- mæltari en hann átti að sér. »Það er nú svona um mig«, sagði hann, »að vínið losar um böndin í sálu minni. Þá steðja endurminningarnar að mér, bæði þær góðu og vondu, og þá sé eg í 16
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.