Nýjar kvöldvökur - 01.07.1930, Page 36

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1930, Page 36
128 NÝJAR KVÖLDVÖKUR hertoginn. »Já, yðar hágöfgi«, svaraði eg og varð nú raeira forviða en nokkru sinni fyr, þó eg léti ekki á neinu bera — »eg lauk við að beygja sögnina í öllum per- sónum eintölu og bætti við: il vient — og þá var það... en því er eg búinn að segja frá«. »11 vient\« hrópuðu þeir báðir, her- toginn og Carford einum munni. »11 vient« endurtók eg með áherzlu og hélt nú, að þeir væru allir orðnir brjálaðir. Carford hvíslaði einhverju að hertogan- um, sem hristi höfuðið og hvíslaði aftur. Báðir voru augsýnilega mjög órolegir. M. de Fontelles hafði þagað og verið ólund- arlegur á svip, á meðan eg sagði hertog- anum upp alla sögu. Nú starði hann afar gaumgæfilega á andlit hertogans. Eg mælti ofur sakleysislega: »Eg skil nú ekkert í hvernig þessi einföldu og rnein- lausu orð gátu gert manninn svona alveg viti sínu fjær; en kannske að yðar há- göfgi gæti komist að sannleikanum í því efni.« Carford hvíslaði enn einu sinni, og hertoginn sneri sér að okkur og mælti: »Herrar mínir, gerið þið svo vel að sætt- ast aftur. -— Þetta er ekkert nema heimska og smámunir, sem þið deilið um.« M. de Fontelles rétti úr sér og mælti hátíðlega: »Eg bað þennan herra um að gefa mér vist loforð, og hann neitaði mér um það.« Eg rétti þá einnig úr mér og sagði engu síður hátíðlega: »Og eg bað þennan herra um að gefa mér vissa skýr- Ingu, en honum þóknaðist að neita því!« »Jæja, þá gefur mr. Dal mér heit sitt,« sagði hertoginn — »eruð þér ánægðan með það mr. Dal?« »Eg hlýði yðar há- göfgi í því sem öðru,« svaraði eg og hneigði mig. »Og þér lofiðþáað nefna við engan mann neitt um það, sem ykkur M. de Fontelles hefir farið á milli!« Eins og yður þóknast,« svaraði eg, »því satt að segja er mér alveg sama um reiði hans. . En það var útskýring sú, er mér finst hann skulda mér...« »Við skulum reyna að jafna það líka,« mælti hertoginn bros- andi. -— »M. de Fontelles skýrir málið fyrir mér.« »Eg er ánægður með það, yð- ar hágöfgi. En látið þér hann þá koma með skýringuna!« »Hann skýrir það fyr- ir mér, Símon — ekki fyrir yður.« Her- toginn hló, og eg sá að eg hafði gengið í gildruna, en var samt nógu skynsamur til þess að láta ekki á neinni óánægju bera, þrátt fyrir, að eg skal játa, að eg var ákaflega forvitinn. Hertoginn lét mig nú skilja, að eg mætti fara, svo eg hneigði mig og yfirgaf þá. En satt að segja var eg alt annað en vel ánægður með úrslitin, þar sem eg varð að fara, án þess að verða nokkru nær um leyndarmál það, er eg svo óvænt hafði hreyft við. — Eg lagði leið mína fram í eldhúsið og á leiðinni hugsaði eg með mér: »Mér skjátlast mikið, ef það liggur ekki í þriðju persónu, því þegar eg sagði: je viens, tu viens, þá greip hertoginn í öxlina á mér og hrópaði: »nokkuð meira?« Eg hafði lagt leið mína í eldhúsið ein- ungis þess vegna að aðrar dyr stóðu mér ekki opnar. En þar sátu þá hinir frönsku fylgdarmenn M. de Fontelles með tóma flösku á milli sín. Þeir voru talsvert ölv- aðir. Eg ávarpaði þá á frönsku og bauð þeim meira vín. Þeir spruttu upp og hneigðu sig, en eg benti þeim að setjast aftur og settist sjálfur á milli þeirra, kall- aði svo á gestgjafann og bað um þrjár vínflöskur. »Það er eins og menn séu frekar heima hjá sér, þegar hver hefir sína flösku«, mælti eg. Og er flöskurnar komu á borðið urðu þeir bráðlega kátir og samræðurnar urðu fjörugar. Það mundi hafa glatt M. de Fontelles, ef hann hefði heyrt frönsku-kunnáttu mína, þeg' ar eg nú átti tal við þjóna hans. — Eg lýsti með mörgum átakanlegum orðum fyrir þeim öllum þeim hættum, sem altaf stöðugt umkringdu friðsamlega ferða- menn á enskum þjóðvegum. »Það er al-

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.