Nýjar kvöldvökur - 01.10.1947, Síða 2
íslenzkar bækur, blöð og tímarit
Erlendar bækur og tímarit
Pappírsvörur - Ritföng - Teiknivörur
Listmálaravörur
Sjálfblekungar í úrvali
Ath. Eina verzlunin d Akur-
eyrij sem selur undrapennann
Kostaboð til fasfra áskrifenda
Tímaritið Bergmál liefir ákveðið að bjóða þeim væntanlegum kaupendum,
sem að fenginni reynslu við lestur fyrsta heftis vilja gerast fastir ás'krifendur
ritsins, alveg sérstök kostakjör. Þeir, sem borga fyrirfram næstu 12 hefti rits-
ins og senda andvirðið, 60 krónur (5 kr. heftið) til afgreiðslu ritsins, Bókaút-
gáfu Guðjóns Ó. Guðjónssonar, Hallveigárstíg 6A, pósthólf 726, fá ókeypis
eina beztu bók, sem út kom á seinasta ári, og sem ein sér kostar nærri því
nefnda uppliæð. Er það bókin Kabloona, hviti maðurinn, eftir franska greif-
ann Gontran de Poncins, sem varð heimsfrægur fyrir þessa ágætu bók sína.
Et hún ferðasaga greifans til nyrztu eskimóabyggða Ameríku og lýsir lifnað-
arháttum og lífsviðhorfum hinna frumstæðu manna alveg sérstaklega vel.
Höfundur fór þessa för skömmu fyrir seinni lieimsstyrjöldina. Flýði hann út
á ísbreiðurnar frá maðksmoginni menningu og bjargaði með þeirri för trú
sinni á lífið og gildi tilverunnar. Lýsir bókin þessum viðhorfum á meistara-
legan hátt. Bókin hefur verið þýdd á fjölmörg tungumál og hefur hvarvetna
átt hinum mestu vinsældum að fagna, enda fer saman í bókinni hrífandi frá-
sögn, skemmtilegt og nýstárlegt efni. íslenzka þýðingin er eftir Loft Guð-
mundsson, leikritaskáld. Kabloona er 280 bls. að stærð í stóru broti, prýdd
fjölda ágætra mynda.
Utanáskriftin er: TÍMARITIÐ BERGMÁL, Pósthólf 726, Reykjavík.