Nýjar kvöldvökur - 01.10.1947, Qupperneq 12
146
PÁLL SVEINSSON í GEITAVÍK
N. Kv.
að Dallandi í Húsavík í Borgarfjarðar-
hreppi, nafnkunnur krafta- og hraustleika-
maður, vel greindur og listhneigður hag-
leiksmaður á marga hluti. Sigríður Árna-
dóttir, kona Sveins Bjarnasonar, var meðal-
kona að vexti, fríðleikskona hins mesta, góð-
leg, vel greind, stillt og háttprúð, verkkona
ágæt og hög vel og hin vinsælasta. Hún var
skrifari góður, og sendibréf, sem til eru eftir
hana, sýna frásagnargáfu ágæta og óvenju-
lega stílfærni af óskólagenginni alþýðu-
konu. Fyi-st bjuggu þau hjón, Sveinn og
Sigríður, nokkur ár í Loðmundarfirði á
bæjunum Árnastöðum og Nesi, og eitt ár á
Heykollsstöðum í Hróarstungu, úður en
þau fluttu til Húsavíkur. Þegar þau fluttu
til Húsavíkur voru fædd fjögur börn þeirra:
Bjarni, fæddur 1886 að Árnastöðum, Páll,
fæddur að Heykollsstöðum 1888, Jón, fædd-
ur að Ámastöðum 25. nóv. 1889, og Þórhild-
ur, fædd 1894 á Nesi. Eimmta barn þeirra
hjóna, Arnbjörg, fæddist í Húsavík árið
1896. Öll voru þessi systkin óvenjulega
gerfileg og öll vel greind. Á öðru búskapar-
ári sínu í Húsavík varð Sveinn fyrir því
óhappi að meginið af fjárstofni hans féll, og
bjó hann þar því lengi við þröng kjör. Frá
Húsavík fluttist hann árið 1904 að Bakka í
Borgarfirði og bjó þar og að Geitavík í sama
hreppi í nokkur ár. Þá fluttu þau hjón í
þorpið á Bakkagerði í Borgarfirði. Bjarni,
elzti sonur Sveins, býr enn á Bakkagerði.
Jón gekk í skóla og var lengi bæjarstjóri á
Akureyri, en er nú skattamáladómari. Þór-
hildur er gift kona á Bakkagerði í Borgar-
firði, Ambjörg giftist Guðmundi Jónssyni
frá Hvanná og fluttist með honum að Mýr-
arlóni í Glæsibæjarhreppi og dó þar árið
1929. '
Páll Sveinsson mun hafa verið mesta eftir-
lætisbam foreldra sinna, og jafnframt sér-
staklega mikið afhaldinn af öllum systkin-
um sínum. Meðan foreldrar hans bjuggu,
fylgdi hann þeim jafnan og varð síðan heim-
ili hans eftir að hann fór að sjá um sig sjálf-
ur áframhald af heimili foreldranna, og hjá
honurn dvaldist faðir hans lengstum til
dauða og móðir hans einlægt, þar til hún dó
árið 1928. — 15. október 1911 kvæntist Páll
Þuríði Gunnarsdóttur ættaðri af Suður-
fjörðum, greindri myndarkonu. Fóru þau
þá að búa á Borg í Njarðvík í Borgarfjarðar-
hreppi og þar bjuggu þau til þess árið 1922.
Börn þeirra Páls og Þuríðar eru fjögur:
Daníel, bóndi í Geitavík, tók við búi þar eft-
ir föður sinn, Sigrún, skólastýra á Bakka-
gerði í Borgarfirði, Þorbjörg, gift kona á
Gilsárvöllum í Borgarfirði og Sigurður við
skólanám.
Eg, sem þessar línur skrifa, kynntist fyrst
Páli haustið 1909. Fluttist eg þá búferlum
til Bakkagerðis í Borgarfirði og hélt þar
unglingaskóla. A kvöldin kenndi eg og
nokkrum fullorðnum mönnurn á líku ald-
ursreki og eg var sjálfur. í þeim flokki voru
þeir bræður Bjarni og Páll. Varð eg þess
strax vís, að þeir voru báðir námsmenn
ágætir, sérstaklega þó á reikning. í 12 ár,
sem eg bjó á Bakkagerði, hafði eg mikið
sarnan að sæla við þá bræður báða, og allt á
eina vísu. Þeir voru báðir drengir hinir
beztu, einarðir og traustir, en Páll var sér-
stakur fjörmaður, jafnan glaðvær og
skemmtilegur. Hann var mikill íþrótta-
maður á yngri árum og glímumaður
góður. — Þegar Kaupfélags Borgar-
fjarðar var stofnað árið 1917, voru þeir
bræður, Páll og Bjarni, meðal aðalforgöngu-
manna að stofnun þess. Þá var fyrir aðeins
ein verzlun á Boargarfirði, útbú frá „hinum
sameinuðu íslenzku verzlunum“. Var verzl-
un þessi dýrseld og vantaði oft nauðsynjar.
Fyrir lienni stóð þó þá duglegur, greindur
og vel kynntur maður, Óla'fur Gíslason, en
yfirboðurum hans mun hafa verið að kenna
en ekki honum, hvað vöruverð verzlunar-
innar var hátt og vöruvöntun tíð. Ibúar
Borgarfjarðar voru þá flestir efnalitlir inenn
og því í stórræði ráðist að stofna kaupfélag-