Nýjar kvöldvökur - 01.01.1957, Page 23

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1957, Page 23
N.Kv. HUGLEIÐINGAR ÓLAFS Á HAMRABORGUM 9 „göfga guðs“. Bak við hversdagslegustu önn mannsins fyrir hagsæld sinni og far- sæld blikar á hinn órökræna lífblæ — hinn dulda anda. Vallarstjarnan er búin töfrum hans. Gnýr fossins er blandinn ómi hans. Yfir hæsta tindinum djarfar fyrir honum. Bak við sólarlagið og morgunroðann bær- ist hann. I sögn fortíðarinnar og spá fram- tíðarinnar felast rúnir hans. I skuggum og skini þess, sem er og þess sem verður, hrær- ist hann. Og þess vegna er ástarstjarnan hans á bak við ský yfir hraundranga skær- asta stjarnan á himninum öllum, því að eng- ir skýflókar né þokubönd megna að hylja skin hennar. Og þess vegna var hann öðrum fremur þess umkominn að arfleiða þjóð sína að fegurstu ástarljóðum, sem íslenzk tunga geymir. Skáldið — maðurinn, sem hafði sam- einað raunkenndina og guðstrúna lífsvitund sinni, hlaut að eiga þá ást í hjarta, sem sameinuð var önd hans — vitundina um guð. Hvað gat hann átt fegurra og háleitara en hana? Þess vegna finnast honum grösin, sem prýða umhverfið, þar sem hann kveður stúlkuna sína, vera krossgrös, það er heilög grös.Og þess vegna veit hann, að „anda, sem unnast, fær aldrei eilíf að skilið.“ Geisl- arnir, sem gjörðu jörðina svo undur fagra og lífið unaðslegt, þar sem starfsgleðin ríkti og trúnaðurinn hélt vörð, voru frá himnum. Þess vegna hlaut eilífðin að vera staðreynd. Alltaf var hann hrifnæmur eins og barn. Landið hans var eins og vermireit- ur. Með barnslegum hreinleik og trúnaðar- trausti biður hann „föður alls, sem er“ að annast hann. Þegar hann stendur á helgistað þjóðar sinnar og bendir á máttarverk drott- ins, segir hann: „Vittu, barn, sú hönd er sterk.“ Og hvað eru landar hans annað en hörn í hans skyggnu augum og raunar hann sjálfur líka, þegar hann spyr á sorgarstund: „Veit þá enginn, að eyjan hvíta á sér enn vor, ef fólkið þorir guði að treysta, hlekki hrista, hlýða réttu, góðs að bíða.“ Ég held, að óhætt sé að slá því föstu, er ég sagði hér að framan. Jónas Hallgrímsson var barn þessarar jarðar, barn þessa jarð- ríkis. En eigi að síður barn guðs, barn guðs- ríkis. Kjarni lífsvitundar hans var meðvit- undin um „göfgan guð“, þann göfga guð, er hinn skyggni og hugprúði lærisveinn hans, Davíð Stefánsson skáld frá Fagra- skógi, ávarpar svo í Hátíðarljóðum sínum: „Þú raikli, eilífi andi, sem í öllu og alls staðar býrð, þinn er mátturinn, þitt er valdið, þín er öll heimsins dýrð. Þú ríktir frá upphafi alda, ert allra skapari og skjól, horfir um heima alla, hulinn myrkri og sól.“ Þegar maðurinn hefur yfirgefið barnið í sjálfum sér eða glatað því — barninu í þess orðs djúpu merkingu — er voði á ferð- um. „Því sannlega segi ég yður: Hver, sem ekki tekur á móti guðsríki eins og bam, mun alls eigi inn í það koma.“ Ég hefi hér að framan farið nokkrum orðum um ljóðin okkar og „listaskáldið góða“, vegna þess að ljóðin voru mér eins- konar formáli — inngangur að þeim lífs- sannindum, sem ég hefi haft kynni af og mér hafa fundizt mikilvægust alls. Á geisla- vængjum þeirra leit ég lönd ódauðleikans og náði fóstfestu þar. Fyrir mörgum árum varð mér það ljóst, að listaverkin eru vegir til guðsríkis, — ljósbrautin til himna. Þetta er lífsreynsla mín. Og vegna þess, sem á eftir kemur, vil ég undirstrika það, að það, sem hér er sagt um ljóðin, er ekki útúrdúr frá efninu. Því eina beina brautin, sem ég hef gengið um ævina, liggur um lönd ljóð- anna.

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.