Nýjar kvöldvökur - 01.01.1957, Blaðsíða 38

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1957, Blaðsíða 38
24 N. Kv. Vísnaþáttur Við byrjum á því að þakka öllum þeim, sem sendu botna við fyrripartana, sem birt- ust í 3. hefti fyrra árgangs. Flestir voru botnarnir góðir, en verða því miður ekki allir birtir rúmsins vegna. Reynt skal að standa við það fyrirheit að birta þá, sem að dómi ritstjóra voru beztir, en sannarlega var hér erfitt úr að velja. En hér koma þá vísurnar eins og þær verða með botnunum: Þegar sól í heiði hlær, hugur minn úr viðjum raknar, lyftir væng og flogið fær, fagnandi til lífsins vaknar. Jón Sig/ússon, Eiðum, S.-Múi. Lengjast skuggar, lækkar sól, leynist uggur mér í hjarta. Frjósa gluggar, fennir skjól, fáa huggar myrkrið svarta. Magnús Kr. Gíslason, Vöglum, Skag. BRAGÞRAUT. Maður nokkur lagði fyr- ir kunningja sinn þennan fyrripart að botna: Víst er brotin vinstri öln, verkjar segg í framhandlegg. Eftir skamma stund fékk hann þennan dýrt kveðna og ágæta botn: Sízt er rotin kirkja í Köln, klerkar hneggja í úfið skegg. íslendingum hefur löngum þótt gaman að dýru rími. Hér koma tvær dýrar: Syngur klóin, kveður röng, kyngisjóar heyja þing, klingir glóhærð kólguþröng kringum mjóan súðbyrðing. Orn Arnarson. Drengur góðan gelur söng, gengur ljóðaharpan slyng, strengur óðar, ljúf og löng, lengur hljóðin ber í kring. Pétur Jónsson frá Eyhildarholti. Hér eru tvær vísur eftir Bjama Jónssoa frá Gröf: Aldrei leysast undan fönn óskir sumra manna. Deyja fyrir dagsins önn draumar hugsjónanna. Óli hresstur aldrei sést, cins og prestur breyti. Nú er flest, sem fannst mér bezt, farið að mestu leyti. Og að lokum nokkrar nýjar stökur eftir Hjört Gíslason: Sá ég vorsins rauðu rós rísa úr grænu flosi, meðan nóttin lokkaljós lézt í dagsins brosi. Dagsins köldu hríðarhögl huldu blómaslakka, kleip að stofni næmri nögl nóttin fingrablakka. Röðulgsislar Ránarsvið rauðagulli stanga, öldufingur fitla við fjörubláan vanga. Sólin Ægi sefur hjá sveipuð mistur dúðum, Ijós og skuggar skylmast á skeljabláum flúðum. Sjúga urtu selabörn, seiðið lokka fljótin, endurnar við óskatjörn eiga stcfnumótin. Meðan léttstíg æskan á ástafund í leyni, gægist fögur fjólubrá feimin undan steini. Svona lífsins angan er áfeng jarðarbarni, þegar íslenzkt vor um ver vefur töfragarni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.