Nýjar kvöldvökur - 01.01.1957, Page 26

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1957, Page 26
12 N.Kv. v BJÖRN R. ÁRNASON: Þor^teiun Þ. Þor*tein**on rithöfundnr og? §kuld Þorsteinn Þ. Þorsteinsson rithöfundur og skáld er fæddur á Uppsölum í Svarfaðar- dal 11. nóvember 1879. Móðir hans var Ai- dís Eiríksdóttir, skálds og bónda á Uppsöl- um, Pálssonar hraðskálds í Pottagerði, Þor- steinssonar skálds og bónda á Reykjavöll- um. Er það Steinsstaðaætt í Skagafirði, af- komendur Páls gullsmiðs Sveinssonar á Steinsstöðum og konu hans, Guðrúnar Jóns- dóttur, foreldra Sveins læknis Pálssonar í Vík (d. 1840). Kona Þorsteins á Reykja- völlum var Ingibjörg Skúladóttir frá Skíða- stöðum. Kona Páls hraðskálds í Pottageröi og móðir Eiríks á Uppsölum var Gunnvör Rafnsdóttir frá Grýtu í Eyjafirði. Kona Ei- ríks og móðir Aldísar var Margrét Gunn- laugsdóttir hónda og fræðimanns á Skugga- björgum í Deildardal í Skagafirði. En kona Gunnlaugs fræðimanns var Bergljót (f. um 1775) Jónsdóttir frá Þverá í Blönduhlíð, Ulugasonar. Gunnlaugur á Skuggabjörgum hefur skrifað aldarfarsbók frá upphafi Is- landsbyggðar og mikinn annan fróðleik. Bróðursonur Gunnlaugs á Skuggabjörguin var Sigmundur Pálsson (f. um 1823, d. 1905) hreppstjóra í Viðvík. Verzlunarstjóri í Grafarósi og síðar oddviti, sýslumaður og frömuður ýmissa mála í Hofshreppi. Lengi bóndi á Ljótsstöðum á Höfðaströnd og vin- sæll héraðshöfðingi alla stund. Voru þeir frændur margir göfugir menn og siðlátir. Svo kvað Bólu-Hjálmar um Signnmd Páls- son: Hér er sætið harmi smurt, ltöldar kæti tepptir. Rekkur mætur rýrndi hurt, rústin grætur eftir. (Hjálmar Jónsson: Ritsafn II., bls. 161.) Og í kvæðinu Gisting á Skuggabjörgum 1849 hljóðar svo fyrsta erindi: Gunnlaugs mig að garði har urn grímu kalda. Manndómsverkin mörg til snillda mér auglýstu bóndann gildt (Hjálmar Jónsson frá Bólu: Ritsafn L, bls. 46.) Faðir Þorsleins Þ. Þorsteinssonar var Þorsteinn „smiður“ (f. 1825, d. í Winnipeg í Ameríku 1912) Þorsteinsson bónda á Ytri-Másstöðum frá 1801-1843, Þorsteins- sonar Jónssonar. Þorsteinn Jónsson var ætt- aður af Suðurlandi. Gerðist ungur vinnu- maður á Hólum í Hjaltadal og síðar bóndi á Fjalli í Kolbeinsdal,og enn síðar bjó hann í Göngustaðakoti í Svarfaðardal. Hann var vel gefinn maður og ráðsvinnur. Þorsteinn á Ytri-Másstöðum var tvíkvæntur, átti fyrst Ragnheiði, aldraða ekkju Rögnvaldar Ás- mundssonar, er áður hafði búið á Másstöð-

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.