Nýjar kvöldvökur - 01.01.1957, Qupperneq 30

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1957, Qupperneq 30
16 ÞORSTEINN Þ. ÞORSTEINSSON, RITHOFUNDUR N. Kv. í verkum kærleiks lýstir þú. Hver dýrleg sál á hlýrri heim en himin guðs i fræðum þeim. Hvert orð og starf var aðalsmerki, sem íslenzk drenglund reisti hæst. í hversdags fötum var að verki sú vizka, er ei í skólum fæst. Sú sívinnandi hjálparhönd, sem hækkar þjóðir, fegrar lönd. Þú stóðst sem hetja í stöðu þinni, þín stjórn var mild, en ráðdeild ber. Og hamingjan hélt hendi sinni sem helgum geislum yfir þér. Og langdrýgst gæfa lífi er það lundarfar, sem bjó hjá þér. Við vanga þinn eg versin lærði, við vanga þinn eg barnið svaf. Og þótt eg vaxinn flugið færði að furðuströndum yfir haf og kveddi allt, sem kærast er, þinn kærleiksengill fylgdi mér. Og þegar aftur sæll í sinni eg sá þig eftir nítján ár, eg endurvakti allt í minni og aftur lifði geymdar þrár. En seinni kveðjan sárra sker, þá samfundunum lokið er. Og síðasta erindi hljóðar svo: Er burt eg flyt úr bústað mínum á blessað draumaland hjá þér, þá vildi eg, lófum verndur þínum. að vanga þínum halla mér og dreyma í hugans sólarsal öll sælublik frá æskudal. SKÁLDIÐ OG RITHÖFUNDURINN. Ég hefi ekki átt þess kost að sjá eða kynna mér nema lítið eitt af ritverkum Þor- steins Þ. Þorsteinssonar. Má það ef til vill einu gilda, því að lítt er ég fær til þess að meta að verðleikum skáldskap og önnur bókmenntaafköst þeirra manna, er mér standa langt ofar að kunnáttu, vitsmunum, dómgreind og smekk. Eg hefi hins vegar frá byrjun þessa þáttar í andlegum skilningi leitazt við að verða hinum gamla sveitunga mínum og góðvini samferða til þess, ef verða mætti, að skilja hann sem bezt og þær minjar, er hann hefur hér eftir sig látið. Er þá stutt frá að segja, að þar sem ég hefi skyggnzt um í ritverkum hans, hefur mér þótt meira kveða að fræðimanninum en skáldinu. Túlkun þeirra hugmynda eða mál- efna, er kvæði hans fjalla um, er tæplega með þeim ágætum eða snilldarbrag, að eft- irtekt mína veki. Þau eru í mínum augum jallegri ljóð Þorsteins Þ. Þorsteinssonar en hitt, hvað þau eru vel ort eða kveðin. Þó er þar að vísu úr nokkuð misjöfnu að velja um hagleik og aðra gerð. Þorsteinn Þ. mun eigi um ævina hafa ver- ið mikið kenndur við kirkju eða trúmál. Og á einhverjum stað segir hann, að trú sín sé „nafnlaus“. Þetta er, held ég, rétt og satt og vel til fundið. Hann leitast hvergi við að villa lieimild á sér með uppgerðarguðrækni eða trúhræsni. Allt slíkt er honum bersýni- lega andstyggð. Og hann er alltaf hatramur og óvæginn andstæðingur allra lífslyga. Og hann er oftar en hitt einrænn nokkuð og ein- þykkur og gjarn til að fara sínu fram. Og oft og löngum virðist mér, að Vesturfarinn frá Syðra-Hvarfi skipi rúm og eigi andlegt sanmeyti með þeim flokki manna, er á stundum er nefndur „hinn minni hluti“. Er það staðreynd margendurtekin, að slíkir eiga oftast við íammt að sjá, og sjaldnast ganga þeir á rósum. Sonurinn þeirra Aldísar og Þorsteins „smiðs“ er ekki — þar sem ég hefi til hug- að — í ljóðum sínum eða lausu máli að eyða orðum eða orku sinni í spjall um vít- isglóðir eða reiðan guð. Hann rekur erindi sín hvarvetna og svo sem alls staðar á ann- an hátt. Grunntónn, sál og andi bókfræða hans er bein eða óbein hvatning til viður-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.