Nýjar kvöldvökur - 01.01.1957, Side 34

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1957, Side 34
20 N. Kv. Ilrid^eþáttur - Ritstjóri: Halldór Helgason. Að I«\**sb í «piS Vafalaust gætu spákonur orðið beztu bridgeleikarar í heimi. Þær væru ekki í miklum vandræðum með að vita, hvor and- stæðinganna hefði hjartadrottninguna eða hvort óhætt væri að spila út trompás, þegar andstæðingarnir eiga aðeins K-x. Við, sem ekki ráðum yfir slíkum kynjamáttum, snú- um okkur venjulega út úr slíkum vanda með því að líta sigri hrósandi til andstæð- inga og áhorfenda þegar vel gengur, en þegar illa gengur, lítum við afsakandi til samherjans og segjum: „Svona er það, þeg- ar óheppnin eltir mann!“ En er þetta nú alltaf svo einfalt, að við getum kennt óheppninni um? Getum við ekki stundum brugðið okkur í líki spákon- unnar og töfrað fram undrunar- og aðdá- unarsvip á áhorfendum með því að finna drottningu eða gosa, þar sem þeir, sem nota heppni-óheppni aðferðina, verða að lúta í lægra haldi? Ein er sú regla, sem hér getur hjálpað 'ckkur. Hún er að sjá spil andstæðinganna með því að telja alla liti og nota upplýsing- ar, sem á annan hátt fást með sögnum og fleiru. Þessi regla er mjög létt í framkvæmd, þótt ótrúlega margir bridgemenn noti hana ekki að jafnaði. Ykkur finnst ef til vill erf- itt að muna, hve mörg spil eru farin af hverjum lit, og að fella síðan saman þær upplýsingar, sem þið þegar hafið fengið, til þess að fá glögga mynd af því, sem þið vitið um spil hvors andstæðings fvrir sig. En það er aðeins í fyrstu spilunum. Ef þið venjið ykkur á að telja hvern lit, munuð þið finna eftir skamman tíma, að þið þurfið ekkert fyrir því að hafa. Þið gerið það eins ósjálfrátt eins og að taka eftir sögnum við borðið. En um svipað leyti takið þið eftir öðru: A einhvern dularfullan hátt haf- ið þið unnið fleiri stig í keppnum eða fleiri krónur í rúbertubridge. Og verið viss um, að það er ekki vegna þess, að þið hafið ver- ið heppnari eða fengið betri spil! Við skulum taka eitt dæmi: S: G-x-x N S: Á-K-x-x-x-x H: x-x-x-x V H: G T: Á-D-10-8 V rp. 1: x-x-x-x L: x-x s L: Á-x Við erum í A og sagnir falla þannig: N. A. S. V. 1 H. 1 S. p. p. 2 L. P. P. 2 S. 3 L. 3 S. 4 L. 4 S. Suður slær út Hx, sem N drepur með HK og slær út HD, sem við trompum. Síðan sláum við út tromp Á og K, en í hann lætur S Tx. Hvað eigum við nú að gera? Við höf- um þegar gefið einn slag í H og hljótum að gefa slag á tromp D og einn slag í L. Það veltur því allt á því, að gefa engan slag á T. Er þá ekki eina vonin að S eigi TK og TG og tígullinn liggi ekki ver en 3 og 2? Eða eigum við að reyna að ná TK einum hjá N? Ef þið samþykkið að reyna aðx-a hvora

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.