Nýjar kvöldvökur - 01.01.1957, Side 37
N. Kv.
ÆGIR OG BREZKl TOGARINN YORK CITY
23
íslendingum var vel kunnugt um þetta
sjónarmið Breta, en létu það að sjálfsögðu
ekki breyta í neinu gerðum sínum.
Aftur á móti var öllum ljóst, að eins og
málum var komið, voru hin nýju fiskveiða-
takmörk einkis virði, nema því aðeins að
við hefðuin bolmagn til að verja þau gegn
erlendri ásælni. Velferð og heiður okkar
íslendinga var þess vegna undir því kom-
inn, að varðskipafloti okkar reyndist því
hlutverki vaxinn að verja hina nýju land-
helgi.
Svo sem búast mátti við, varð þess heldur
ekki langt að bíða, að gerð yrði tilraun til
þess að brjóta niður gerðir okkar í land-
helgismálinu. Það var brezki togarinn York
■City, sem þar reið á vaðið þann 16. júlí
sama ár.
Taka þessa togara í íslenzkri landhelgi
varð því sögulegur atburður, sem sýndi vel
einurð og festu landhelgisgæzlunnar, þegar
mest reið á.
Hér verður því leitazt við að skýra sem
■nánast frá viðureign varðskipsins Ægis við
þennan brezka togara, ef vera mætti til
fróðleiks og skemmtunar þeim, sem áhuga
hafa fyrir störfum varðskipa okkar og því
mikilvæga hlutverki, sem þau liafa að
gegna.
Til þess að gefa sem gleggsta yfirsýn
yfir atburðarásina, skulu nú hin umfangs-
?niklu réttarhöld, sem á eftir fóru, rakin í
stórum dráttum. Þeim stjórnaði sakadóm-
^rinn í Reykjavík, Valdimar Stefánsson,
cn honum til aðstoðar í dóminum voru þeir
Hafsteinn Bergþórsson, útgerðarmaður, og
.Pétur Björnsson, skipstjóri. Rannsóknar-
dóminum fórust störf hans svo vel úr hendi,
að foringi brezka eftirlitsskipsins, H. M. S.
Mariner, sem viðstaddur var öll réttarhöld-
ln5 lét færa til bókar í lok þeirra þakklæti
sitt til dómsins fyrir lipurð og langlundar-
geð.
Fyrstur kemur fyrir dóminn Þórarinn
Björnsson, skipherra á Ægi.
Hann lagði fram skýrslu sína um töku
togarans og sjókort, þar sem merktur var
staður togarans. Fer skýrsla skipstjórans
hér á eftir orðrétt:
Hér með leyfi ég mér, herra sakadómari,
að senda yður skýrslu um meint fiskveiði-
brot S. V. Jones skipstjóra á enska togaran-
um YORK CITY, GY. 193, frá Grimsby,
fædds 15. febrúar 1900. Nánari atvik eru
sem hér segir:
Miðvikudaginn 16. júlí kl. 1422 var
varðskipið statt út af Ólafsvita á Patreks-
firði og lét reka. Sást þá til togara rétt laust
við Blakksnes (Straumnes), og lék grunur
á, að hann væri að veiðum innan fiskveiði-
takmarkanna. Var þá sett á ferð og haldið
út með nesinu.
Kl. 1445 er staður skipsins: Bjargtanga,
Blakksnes, fjarlægð frá Blakksnesi eftir
ratsjá 0,6 sjómílur. Samtímis miðaðist tog-
arinn í réttvísandi 304°, fjarlægð 3,5 sjóm.
eftir ratsjá. Miðun til togarans tekin eftir
segulkompás skipsins. Togarinn hélt þá í
SSV-læga stefnu, misvísandi.
Kl. 1450 Sett upp stöðvunarflagg.
— 1455 Skotið lausu skoti.
— 1456 Skotið lausu skoti. Togarinn
beygir út um og stýrir í NV-læga stefnu,
misvísandi.
Kl. 1458 Skotið skörpu skoti.
— 1459 Togarinn flautar, en stöðvar
ekki.
— 1500 Skotið skörpu skoti.
— 1502 Skotið skörpu skoti.
— 1503 Látið út dufl við kjölvatn tog-
arans.
(Framhald á bls. 26.)