Nýjar kvöldvökur - 01.01.1957, Síða 46

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1957, Síða 46
32 ÆGIR OG BREZKI TOGARINN YORK CITY N. Kv. tilfelli alveg á línunni. Með þessu sé ósann- að, að togarinn hafi nokkurn tíma þann 16. júlí 1952 verið nær landi en hann var, er hann kastaði akkeri kl. 15.17. Þessi röksemdafærsla er algerlega byggð á útreikningi skipherra brezka eftirl itsskips- ins, er fram kemur í allmörgum spurning- um, er hann lagði fyrir skipherrann á Ægi, og hér er ekki rúm til að rekja frekar. Er nú komið að lokaþætti þessa máls, og skal að síðustu tilfært niðurlag sakadóms- i s, þar sem tekin er afstaða til ofangreindra röksemda. Þar segir svo: Um staðarmælingar ákærða og útsetn- ingu lians á þeim í sjókort togarans, er það að segja, að útsetningin er ekki í fullu sam- ræmi við mælingarnar. Þannig kveðst hann hafa rnælt stað togarans 4.8 sjómílur frá landi, þegar hann var lagztur við akkeri, en í útsendingu hans er staðurinn sem næst 4.2 sjómílur frá landi. Um mælingar sínar var ákærði að mestu einn og gerði ekki sextant- mælingar. Lítur dómurinn svo á, að á mæl- ingum hans sé ekki byggjandi gegn horna- mælingum varðskipsmanna, auk þess sem þær eru einnig í ósamræmi við mælingu foringja brezka eftirlitsskipsins á lokastað togarans. Þá er þess að gæta, að ákærði hefur, með megnri óhlýðni sinni við stöðv- unarmerki varðskipsins, gert ærið til að torvelda sönnun fyrir því, hvar togarinn var, þegar eftirförin hófst. Sú lauslega áætlun II. stýrimanns varð- skipsins. ?ð 3000 metra vegalengd hafi verið milli varðskipsins og togarans, þegar fyr^ta kúluskotinu var hleypt af, verður oð áliti dómsins að teljast óáreiðanleg,þar sem þesA áætlaða vegalengd kemur í bága við siglingu varð-kipsins frá kl. 14,45. Hlýtur önnur hvor í'atsjármælingin, sú, sem gerð var kl. 14,45, eða þessi mæling stýrimanns- ins að vera röng, en dómurinn hlýtur að telja fyrri mælinguna miklum mun áreiðan- legri en hina síðari, þar sem hún var gerð eftir skipun skipherra og undir umsjá hans og rituð samstundis, heldur en hin lauslega mæling stýrimannsins, sem hann breytti í flýti úr mílum í metra. Með eiðfestum skýrslum varðskips- manna um eftirförina og staðsetningu dufls- ins í kjölfar togarans lítur dómurinn svo á, að sannað sé, að duflið hafi verið sett á stað, sem togarinn hafi verið á, eða alveg við, á veiðum. Það er alkunna, að kjölfar skipa sést greinilega nokkra stund í þeim veðurskilyrðum, sem þarna voru, og þar sem varðikipsmennirnir sáu kjölfar togar- ans töluvert nær landi en þar sem duflið var sett, verður talið, að togarinn hafi a. m. k. verið jafnnærri landi og duflið. Ennfremur er það álit dómsins, að afstaða skipanna og hraði fram að lagningu duflsins brjóti ekki í bága við, að duflið liafi verið sett í kjöl- far togarans skannnt aftan við hann, eins og varðskipsmenn hafa skýrt frá. Hitt þykir varhugavert að telja nægilega sannað, ið togarinn hafi verið nær landi, enda engin mæld vegalengd að halda sér að í því tilliti. Hornamælingar varðskipsins sýndu stað duflsins 1,1 sjómílu innan hinna nýju fisk- veiðitakmarka, en hornamælingar H.M.S Mariner sýndu stað duflsins 1 sjómílu utan sömu takmarka. Þar sem horn þau, sem varðskipið mældi, eru stærri en þau, sem brezka eftirlitsskipið mældi, og staðirnir, sem mælingarnar eru miðaðar við, efu greinilegri á sjókortinu hjá varðskipinu en eftirlitsskipinu, þykir verða að leggja mæl- ingar varðskipsins til grundvallar dómi * máli þessu. Af sömu ástæðu verða mæling- ar varðskip-ins á stað togarans, eftir að hann var lagztur við akkeri, lagðar til grundvallar dómi í máli þessu.

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.