Templar - 20.08.1923, Síða 11
Fylgirit Tcmplars 3923
9
læknirinn fær von um, að sjúklingurinn muni
hafa fengið vitið aftur að nokkru leyti, þá fer
læknirinn með hann inn í sérstakt herbergi
þar sem er vatnskrani. Læknirinn opnar, svo
vatnið streymir um gólfið. Svo skipar hann
manninum, sem prófa á, að leggjast niður á
gólfið og drekka upp alt vatnið, sem streymir
á gólflð. Ef sjúklingurinn hlýðnast skipuninni
og reynir að drekka vatnið jafnóðum og það
rennur á gólflð, þá veit læknirinn, að sjúkl-
ingurinn hefir enn ekki t'engið vitið aftur. En
ef hann í stað þess hleypur til og lokar kran-
anum, svo vatnið hætti að streyma, þá bros-
ir læknirinn ánægjulega og segir: »Maðurinn
hefir fengið vitið aftur. Það er óhætt að senda
hann heim«.
Eiturkranar í hundruð þúsund&taii
voru til um öll Bandarikin. Og þeir stóðu
opnir, svo eitrið fióði um bygðir og ból. Þeir
stóðu opnir alla daga, já, í stórborgum stóðu
þeir líka opnir um nætur. Vínsalarnir í stór-
borgunum höfðu veitingakrárnar opnar 24
stundir í sólarhring og óskuðu þess mjög, að
það væru fleiri stundir en 24 i hverjum sól-
arhring.
I