Templar - 20.08.1923, Blaðsíða 19
JFylgirit Templars 1923
17
sem innihalda meir en procent af alkoholi
að rúmmáli, skyldu bannaðir.
Mjög ströng hegningarakvæði voru og sett
i þessnm lögum.
Með því að Yolstead-lög eru ekki grund-
vallarlaga-ákvæði, heldur að eins almenn lög,
má breyta þeim með einföldum meirihluta á
Sambandsþinginu. Þvi hefir verið mjög mikið
deilt um þau, og svo mun líka verða.
Wilson forseti og Volstead-lðgin.
Wilson sýndi rækilega á stjórnarárum sin-
um, að hann var móti banninu. Það sýndi
sig i tregðu hans að samþykkja bráðabirgða-
bann á slríðsárunum, en skýrast í afstöðu
hans til Volstead-laganna. Volstead-lögin voru
samþykt með miklum meiri hluta i báðum
deildum Sambandsþingsins, en Wilson forseti
neitaði að rita undir lögin. Voru þau þá aft-
ur samþykt með nægilegum meirihluta til
þess að öðlast gildi þrátt fyrir neitunina.
Síðari stríð nm Volstead-lögin.
Þegar við kosningar 1920, er ekki einasta
fóru fram kosningar á 467 Sambandsþing-
mönnum heldur og líka á forseta Bandaríkj-
2