Templar - 20.08.1923, Page 22
20
Fylgirit Templars 19*3
ef almeaningur fengi að 'greiða atkvæði um
bannmálið aftur, þá mundi það verða af-
numið. i
Eg ætla hér að tilfæra nokkur dæmi sem
sýna, að í þessu skjátlaðist andbanningum
heríilega.
í fylkinu Colorado fór fram atkvæðagreiðsla
um það, árið 1914, hvort innleiða skyldi vín-
sölubann. Bannmenn sigruðu. Meirihluti með
banninu varð 41,572 atkvæði.
Bannið komst á. Bannféndur hömuðust á
móti því. Töluðu um, að það væri nú verra
en áður. Málinu var aftur skotið til almenn-
íngs með atkvæðagreiðslu 1916, en nú varð
meirihlutinn með banninu 85,792 — meir en
tvöfalt stœrri!
í Washington fór fram atkvæðagreiðsla 1914.
Þar höfðu bannmenn 18632 atkvæða meiri-
hluta.
En mótstaðan var lík þeirri, sem gaus upp
í Colorado. Ný atkvæðagreiðsla var nú heimt-
uð í Washington. Hún fór fram 1916. Meiri-
hlutinn með banni, eftir reynslu á því, varð
146,556/
Egskal enn afmörgum slíkum fylkjum nefna
Michigan, þar. sem eg hafði aðsetur árið 1916