Sumargjöf - 01.01.1905, Page 17

Sumargjöf - 01.01.1905, Page 17
15 heimtar In'm að ég fiimi orsakasambandið. En þegar einhverjum viðburði er þannig liáttað, að annar við- burður hlítur óumflíanlega að fara á eftir honum, þá er sambandið milli þeirra kallað orsakarsamband; firri liðurinn er kallaður orsök, liinn síðari afleiðing. Þessi athugun, reinslan, er hinn fóturinn undir allri þekkingu. — Þegar ég ætla að skíra, eitthvað firii- öðrum, segi ég honum, að það sé eins og eitthvað, sem ég veit að hann þekkir og er líkt. Ef ég ætla að skíra, firir einhverjum, hvað sé átt við með orðinu »kringlóttur«, þá segi ég honum, að kringlóttir séu þeir lilutir kallaðir, sem eru eins i laginu eins og honum sinist sólin vera, Ég skíri því hið óþekta með því að bera það saman við hið þekta til að sjá hvort það er líkt því eða- ólikr. Svona er öll hugsun. Hún er ekki annað en samanburður. Af því er auð- séð að hugur mansins skilur ekki það, sem ekki verður borið saman við neitt. Hann skilurþví ekkert, sem er takmarkalaust, og getur ekkert annað um það sagt, en að hann skilji það ekki. Sá sem firstur sindi fram á takmörk hugsunarinnar, var Gorgias fi’á Leontini (sendur til Aþenu 427 f. Kr.). Samtíða- maður hans var Sókrates. Hann lagði mjög mikla áherslu á rétta hugsun. Einkum leiddu samtöl hans og spumingar til, að menn vöndust á að kveða skirr á um það, hvað lægi i orðunum, þ. e. gerðu hug- mindirnar að hugtökum. Það má og telja hann höf- und þeirrar aðferðar, sem kölluð er aðleiðsla. Hún er fólgin í því, að einstakar athuganir leiða að al- menmun setningum. Þessa aðferð hefir hann í sam- tölum sínum. Einn af lærisveinum hans, Plato, hefir við þetta vaknað til umhugsunar um rökfræði og áliktanaaðferðir og ritað um það merkileg rit og

x

Sumargjöf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sumargjöf
https://timarit.is/publication/547

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.