Sumargjöf - 01.01.1905, Side 36

Sumargjöf - 01.01.1905, Side 36
langar mig til aö biðja guð. Sál mín er orðin veikluð eins og líkaminn. Nú er ég orðinn þreyttur og hefi þó skrifað þetta með hvildum ; svo aumur er ég. — Blessaður skrifaðu mér eins oft og þú getur og alt, sem þú getur, þó að ég endist ekki nema einstaka sinnum. Kannske mér batni, þá skal ekki standa á bréfunum. Vei'tu sæll, vinur. 12. apríl. Vinur minn góður! Örfáar línur verð ég að skrifa þér, þó að ég sé varla maður til þess. Mér hefir stórfarið aftur síðan eg skrifaði þér seinast. Líklega eru :lagar mínir bráðum taldir og læt ég mér það vel líka; það er þó betra en hjara, sjálfum sér til kvalar og öðrum til skapraunar og óþæginda. En liA7að blessað veðrið er gott! Sólin skín nú inn um gluggann á fótagafiinn í rúminu minu. Hún fer nú bráðum að vekja náttúruna af vetrardval- anum; þá byrjar allt sitt blómaskeið, sem lifað getur. En ég vesalingur get ekki fundið vorið eða lífið; við mér horfir að eins dauðinn. Eg gæti vel sætt mig við að deyja, ef ég hefði náð fullkomnum aldri og séð eitthvað af vonum mínum rætast. En að deyja í blóma aldurs síns, án þess að hafa starfað nokkuð, eða notið lifsins á nokkurn hátt, það þykir mér sárt. Finst þér það ekki líka'? Lífið er blessað, þegar það gengur vel, hlýtur að vera dæmalaus sæla. En mönnum er svo hætt við slysum, sem geta eitrað það alt, og vandfarið er með það. Eg hefi minst á uppeldi við þig. Þar er nú ábótavant. Hver einasti unglingur er látinn fara blindandi út í lifið. Þess vegna fer sem fer; revnzlan

x

Sumargjöf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sumargjöf
https://timarit.is/publication/547

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.