Sumargjöf - 01.01.1905, Side 76

Sumargjöf - 01.01.1905, Side 76
74 höfuðið með sívagsandi afii inn í brjóst mótstöðu- mannsins. Andlit Archippos þrútnaði, hann lét aftur augun og hann n.áði ekki andanum. Alt í einn varð hann náfölur, því að hann var hálfkafnaður, og í dauð- ans angist opnaði hann augun og rétti upp höndina. »Lát liann lausan! liann er að kafna . . . hann hefur gefist upp«, var kallað úr öllum áttum. Aristodamos setti risann til jarðar hálfmeðvit- undarlausan og studdi hann, þar til eftirlitsmenn nokkrir konm honum til hjálpar. Þessi glhnulok voru svo óvænt og undursamleg, að allur mannfjöldmn þagði um stund sem steini lostinn. En er hinn elsti af glímudómöndum, rétti honum pálmagreinina og lúðrar voru þeittir og kallarinn hrópaði nafn Aristodamos, þá raufst þögnin og allar þúsundirnar hófu óstjórnlegt gleðióp, sem aldrei ætláði að linna. Allur leikvöllurinn kvað við af gleðiópinu. öllum rnönnum, jafnvel hinum vönduðustu, þótti vel farið, er Arclúppos beið lægra hlut. Því að öllum var illa við ágirnd hans og fjardrátt, Dálætíð á Aristo- damos var takmarkalaust. Nafn hans var á hvers mannis vörum; og- fjöldi áhorfanda streimdi inn á glimuvöllinn, þótt eftirlitsmenn reindu að stöðva þá«. Svo mikið þótti Grikkjum til koma sigurvegar- anna við slik tækifæri, að ættborg sigurvegarans lét hann lifa á alþjóðar kostnað í þakklætis skini flrir þann heiður, er hann ávann ættborg sinni. Islensk glíma er þó miklu fegri list. En nú er hún komin á grafarbarminn. Þó mundi oss sæmra að láta eigi svo fagra list tinast. BJARNIJÓNSSON frá Vogi.

x

Sumargjöf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sumargjöf
https://timarit.is/publication/547

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.