Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 03.06.1962, Page 28

Sjómannadagsblaðið - 03.06.1962, Page 28
Knud Fr. Holm, yfirvélstjóri á ms. Selandia. ar þeirra sönn hneykslunarhella og viðbjóður öllu fagurfræðilega hugs- andi fólki. Þess vegna var það, að á sumum þessum skipum sem öll höfðu fullan seglbúnað, voru reyk- háfarnir þannig gerðir að hægt var að ýta þeim saman, eins og sjón- auka, niður í skipið, svo að þeir hurfu að mestu, — var hafður sá háttur á ef leiði var gott og vélar- innar ekki þörf. Reykháfur þótti þá jafn óviðfelldinn á fallegu seglskipi, eins og ef maður mætti með fótbolta- skó á fótum og derhúfu á höfði í veizlusal þar sem fólk væri saman- komið í hátíðabúningi. En þetta breyttist smám saman, og þegar leið á öldina var fólkið farið að venjast reykháfunum og jafnvel trúa á þá. Þeir urðu í augum þess tákn hraða og öryggis. Þegar Vestur- heimsferðir voru hvað mestar upp úr aldamótunum, var það áberandi hve fólkið sóttist eftir að komast með skipum sem höfðu marga reyk- háfa, það var ekki nóg með einn reykháf 2 var betra, helst 3 þurftu þeir að vera. Það var eins og örygg- iskendin ykist með hverjum reykháf. Eimvélin var um þessar mundir orðin hið mesta átrúnaðargoð skipa- félaganna, og yfirleitt allra siglinga- þjóða. Með tilkomu eimtúrbínanna fyrir aldamótin, var stærð þeirra lít- il takmörk sett. Þær voru orðnar gangvissar og traustar. Eimskipin voru búin að mestu að útrýma hin- um „hvítu svönum“ af heimshöfun- um, öld seglskipanna var liðin, tími eimskipanna tekinn við. Og nú komu Danir, litla landbún- aðarþjóðin við Eyrarsund, með þetta einkennilega skip með ,,olíuvél.“ Það hafði ekki einu sinni reykháf. Var nokkur furða þó það vekti athygli? 22000 sjómílna vel heppnuð reynslu- ferð þess til Austurlanda, varð um- talsefni blaðanna um heim allan. Fólkið streymdi að hvaðanæva til þess að skoða skipið þar sem það lág við land. Og svo mikill var gesta- gangurinn, að þrisvar varð að skifta um gólfábreiður í göngum og setu- stofum í fyrstu ferðinni. Meðal gestanna voru furstar og framámenn í stjómmálum, útgerðar- málum og iðnaðarmálum. Vélbún- aður Selandíu var nýjung sem vissu- lega vakti athygli. Hamingjuóskir brezka hermálaráðherrans, sem þá var Winston Churchill, er hann flutti í morgunverðarboði á skipinu í Lundúnahöfn, hafa þótt orð í tíma töluð, hann sagði: „Mér er ljúft að óska Danmörku til hamingju, hinni gömlu siglingaþjóð sem hefir vísað veginn og stígið framfaraspor sem valda mun byltingu í framþróun sigl- inganna. Þessi skipsgerð er full- komnasta meistaraverk aldarinnar.11 Það var af „praktiskum“ ástæðum að útblásturspípumar á Selandíu voru leiddar upp með aftursiglunni, reykháfs var ekki þörf. En nú braut þetta aftur í bág við fegurðarskin fólksins, eða kannski við gildandi tízku. Það vantaði eitthvað. Al- menningsálitið er máttugt. Nú hafa öll stór motorskip fengið reykháf, þó sjaldnast sjáist rjúka á þeim bæ. Það virðist róa fólkið að horfa á hann þó að innan í honum sé ekkert annað en t. d. vatnsgeymir, hljóð- deyfar eða því um líkt. Já, það var engin furða, þó þetta nýja „dampskip“ vekti forvitni fólks- ins og athygli. Utvegsmönnum, sem kynntu sér hina fjárhagslegu hlið við notkun skipsins, gaf það fyrir- heit um mjög aukna hagnaðarvon. Það var eitthvað annað en á eim- skipunum, að geta nú haft eldsneyti til langrar ferðar í skipsbotninum, og sparað með því lestarrúm. Og þá var það mannahaldið. A eimskipi á stærð við Selandíu þurfti 25 menn í vél, en nú var gert ráð fyrir 8 mönnum. Hins vegar var svo spurn- ingin um gangöryggi og viðhald. Ur því gat reynslan ein skorið. Tryggingarfélög og bankar voru í fyrstu mjög íhaldssöm um fyrir- greiðslu þegar um smíði mótorskipa var að ræða, og Lioyds átti ekki neinar öryggisreglur um smíði slíkr- a véla. Af frásögnum um smíði vél- anna í Selandíu má ráða, að um þær hafi verið útgefnar reglur að- 34 SJOMANnadagsblaðið
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.