Sjómannadagsblaðið - 01.06.1983, Page 21
Flotinn í höfn á sjómannadaginn.
Formannavísur
nefnd, sem sér um útihátíðahöldin
og sérstök nefnd sér um skemmti-
atriði á kvöldin.
Sjómannadagurinn í Bolungar-
vík er með föstu sniði. Við byrjum
hátíðahöldin á laugardegi með
hópsiglingu bátanna. Þá er öllum
Bolvíkingum boðið í skemmtisigl-
ingu og margir fara þar sína fyrstu
sjóferð.
Um kl. 10 er safnast saman við
öldubrjótinn og gengið er undir
fánum til kirkju, og hlýtt á messu.
Síðan er farið upp í kirkjugarð,
þar sem lögð eru blóm að minnis-
varða þeirra er fórust með Baldri
árið 1941. Með því móti minnumst
við látinna sjómanna og þeirra er
farist hafa á sjó. Ekki aðeins Bol-
víkinga, heldur allra sjómanna.
Síðan er gert hlé, en um klukk-
an 14 byrjar kappróður við höfn-
ina og að róðri loknum, er gefið
smá kaffihlé. Að því búnu byrja
svonefnd útihátíðahöld, en þá er
farið í allskonar leiki og keppni —
og allir eru með.
Ég er að vísu ekki mjög
fróður um sjómannadaga í öðrum
byggðum, en mér sagði læknir úr
útgerðarbæ fyrir norðan, að hann
hefði orðið mjög undrandi, er
liann kom til Bolungarvíkurog var
þar á sjómannadaginn, þegar nafn
hans var allt í einu nefnt og hann
átti að taka þátt í pokahlaupi, eða
einhverju svoleiðis. í hans heima-
bæ tóku að vísu flestir þátt í há-
tíðahöldunum, en þó skiptist þetta
í tvo hópa, þátttakendur og áhorf-
endur, eins og hann orðaði það.
Hér eru allir með, eða þátttak-
endur. Enginn undanskilinn.
Þessi útihátíðahöld standa yfir-
leitt til klukkan 18, og er þá gert
hlé, en klukkan 20:30 hefst
skemmtun í félagsheimilinu með
skemmtiatriðum, er stendur til
klukkan 22:30. Þá hefst dansleik-
ur, sem er seinasta atriði hátíða-
haldanna á sjómannadaginn.
Nú þarf ekki að taka fram, að
öll skip eru í höfn, ef því verður
mögulega við komið.
Jón frá Vöðlakoti:
Frá Vöðlakoti karskur Jón,
kugginn flot á drífur,
aflanotinn áls um frón
í stórhrotum þrýfur.
Á „Farsæl“ vindur voð að
hún,
þó versni lyndi Kára,
stikar í skyndi stökkuls-tún,
stríð þó hrindi bára.
Jón Stefánsson, af Eyrarbakka:
Stefánsarfi um ufsa-frón
aflastarfið reynir,
heppinn, djarfur, hraustur Jón
hlunna karfa beinir.
Honum fylgir hamingja
hafs- á æstum boðum,
fram úr bylgjum „Fortuna“
fer með glæstum voðum.
Magnús Jónsson, frá Hjalla:
Út um bungur flyðrufróns,
við fiska- slunginn leitir,
Magnús ungur arfi Jóns,
ára-lungi beitir.
Hamaðist lengi hrönnin
breið,
herða drengir strengi,
flytur „Engey“ — ítur skeið
áls — um vengi mengi.
Magnús Jónsson, frá Hrauni:
Magnús harður Hrauni frá,
hnýsu-jarðir kannar,
ekkivarð að vatni sá
þó va\i garður Hrannar,
Skafla háa brýtur „Björg“,
bylur þá í strengjuni,
skeiðar bláan skerja-hörg,
skipuð knáuin drengjum.
SJÓMANNDAGSBLAÐIÐ 21