Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1992, Page 20

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1992, Page 20
18 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ Guðmundur Hallvarðsson: TVÖ ÞINGMÁL SJÓMANNASTÉTTARINNAR Eins og sést á töflum, sem fylgja þessari grein um slys og dauða í sjómannastarfinu þeirra völdum, má öllum ljóst vera, að sjómönnum er mikil nauðsyn á að standa vörð um lífeyrissjóð sinn. Það hefur komið til álita að breyta greiðslu örorkubóta þannig að ör- orkan verði endurmetin eftir 5 ár. Eins og er gerist þetta svo: 1. Staða mannsins í sjóðnum skoð- uð, það er hvað hann hafi greitt mik- ið síðustu 5 árin, og það árabil síðan gert að útgangsreikningspunkti til framreiknings á því hvað hann hefði haft í tekjur, ef hann hefði haldið áfram starfi, og það er notað til að reikna ofan á manninn tekjur til 65 ára aldurs. Maður, til dæmis, sem búinn væri að vera á fyrstitogara síð- ustu 5 árin, honum væru reiknaðar þær tekjur til 65 ára aldurs, og í þann endann er svo tekinn staða hans á greiðslu í sjóðinn og síðan reiknað út hvað honum beri í örorkulífeyri. Þetta fyrirkomulag getur haft í för með sér miklar greiðslur úr sjóðnum. Til dæmis fyrir marz mánuð nú voru greiddar örorkubætur úr lífeyrissjóði sjómanna jafn háar ellilífeyris- greiðslum og runnu rúmlega 15 millj- ónir í hvorar bæturnar um sig. Sjó- maður, sem ekki getur stundað sjó- mennsku fær bætur úr sjóðnum ævilangt. Það hefur gerzt nú hin síð- ustu ár í vaxandi mæli, að sjómaður, sem farið hefur í land, vegna þess að hann getur ekki stundað sjó- mennsku, hefur sem betur fer náð sér svo, að hann getur stundað mörg önnur störf en sjómennsku. Það gild- ir sú regla í öllum lífeyrissjóðum, nema lífeyrissjóði sjómanna, að eftir 5 ár er örorka endurmetin. Og ef það reynist svo að örorkustigið hafi lækk- að og vinnugetan aukist eru örorku- bæturnar endurmetnar til lækkunar. Guðmundur Hallvarðsson. Við viljunr breyta okkar reglum í samræmi við aðra sjóði þannig að ör- orka mannsins verði endurmetin og að hvaða marki hann sé hæfur til annarra starfa. Það eru margvíslegar ástæður fyrir örorku sjómanna. Eg get tekið sem dæmi mann, sem bjargast hefur af skipi, sem hefur farizt, og hann hefur orðið fyrir því andlega áfalli að hann getur ekki stundað sjóinn lengur, honum reynist það óbærilegt, en get- ur verið fullfrískur að öllu öðru leyti en þessu, en samt fengið fullar ör- orkubætur útúr lífeyrissjóðnum. Að- stæður okkar eru í þessu efni sem fleirum allmikið annað en gerist al- mennt um lífeyrissjóði. Örorkubætur hljóta náttúrlega alltaf að verða hlutfallslega miklar úr lífeyrissjóðum sjómanna vegna þess hve slysatíðni er mikil í stéttinni. Menn eru því skiljanlega tregir til að hrófla mikið við örorkubótakerfinu. En við erum ábyrgir fyrir skuldbind- ingum sjóðsins og verður að gæta þess, að ekki sé meira á hann lagt, en hann getur staðið við. Það sýnist ekki óeðlilegt að breyta þessu í það horf, sem er í öðrum lífeyrissjóðum, að örorka sé endurmetin. Maðurinn fái 5 ár til að aðlaga sig að starfi í landi. Honum séu greiddar fullar örorku- bætur þann tíma, en þá sé hans ör- orka endurmetin, sé hún hin sama og hún var, fær hann áfram fullar ör- orkubætur, annars lækkun í hlutfalli við aukna starfsgetu. Við erum auðvitað spurðir, af hverju hækkið þið ekki iðgjöldin í stað þess að breyta reglunum? Mér finnast iðgjöldin há, og vand- séð að menn fengjust almennt til að taka á sig hærri iðgjöld til þess að borga eftir 5 ár fullfrískum mönnum til annarra starfa örorkubætur. Tryggingarbætur lífeyrissjóðs sjó- manna eru miklar miðað við burði sjóðsins, þær jukust mikið, þegar lögunum var breytt 1980 og sjómenn fóru á ellilaun sextugir, ef þeir höfðu verið alls 25 ár til sjós. Menn njóta við þessi ævimörk allra réttinda elli- lífeyrisþega, svo sem eftirgjöf ýmissa gjalda, til dæmis lyfja- og læknaþjón- ustu. Þar sem ríkið hafði í kjarasamn- ingum gengist inná þetta ákvæði var gert ráð fyrir að ríkið tæki þátt í þeim kostnaði, sem þetta hefði í för með sér fyrir lífeyrissjóð sjómanna. Hún gekk seint sú innheimta, en henni lauk svo, að lífeyrissjóðir sjómanna- félaganna fengu greiðslu úr gengis- munasjóði til að létta greiðslubyrði sjóðanna af þessum sökum m.ö. sjó- mönnum var rétt eigið fé til greiðslu í sjóðinn. Nú er verið að flytja frum- varp um verðjöfnunarsjóð og gæti komið úr þeim sjóði í lífeyrissjóði sjómanna, sem eru sjö talsins, 270 milljónir. Þetta ætti að dekka þann
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.