Sjómannadagsblaðið - 01.06.1992, Blaðsíða 25
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
23
að byggja upp skuttogaraflotann, að
mönnum fannst allt í lagi að búa skip-
in þessum litlu hraðgengu skrúfum,
þótt það útheimti fyrir togarana
meiri vélakraft.
Útgerð okkar togara er alltof dýr
til þess að við höfum efni á að fara í
viðamiklar tilraunaveiðar. Við höfð-
um reynslu annarra þjóða af veiðum
á úthafskarfa. Þær tilraunir báru
nógu skjótt það góðan árangur að við
fórum ekki á hausinn með þetta, en
það er meiri óvissa í tilraunaveiðum
á búranum og langhalanum.
Það er verulega slæmt að ríkisvald-
ið skuli ekki ganga þarna betur fram
fyrir skjöldu. Ríkið studdi svolítið
við bakið á okkur í tilrauninni á út-
hafskarfaveiðunum, lét okkur hafa
140 tonn af grálúðukvóta á skip það
árið og það var styrkur að því. Olíu-
félagið lét okkur hafa 500 þús. kr.
olíustyrk á skip.“
Veiðileyfísgjald
Það er náttúrlega gjaldtaka, sem
útgerðin þolir ekki nú, nema þá að
felld væru niður einhver önnur gjöld
á móti,“ sagði Jón, og var sammála
því að Einar Oddur hafi hitt naglann
á höfuðið, sem sýnist árátta á hon-
um, og þykir vondur sjúkdómur nú í
stofnanamáli framámanna, þar sem
þess er gætt að hitta alls ekki nagl-
ann, nema þá til að beygja hann. Ein-
ar á að hafa kallað framí ræðu ein-
hvers veiðileyfisprófessors, sem
sagði að það væri líklega ekki hægt
að leggja þetta gjalda á fyrr en út-
gerðin færi að bera sig. Þá gall við í
Einari Oddi: „Þá þarf maður ekki að
hugsa um það næstu 40 árin.“ Jón
sagðist ekki viss um að Krötum væri
nokkur alvara í þessu máli, það yrði
til dæmis að breyta öllum kjarasamn-
ingum. Við gætum ekki borgað
veiðileyfisgjald án þess að þeim væri
eitthvað breytt, og sættu sjómenn sig
við að borga fyrir að fá að sækja sjó?
Nokkur orð um eilífðarmálin
„Kjaramálin eru náttúrlega alltaf í
deiglunni, en skipshöfnin hefur gott
upp fyrir mikla vinnu, hásetahlutur
þetta á bilinu 250-450 þús. í mánað-
artúr. Það er stöku sinnum að menn
þurfa að standa frívaktir, en yfirleitt
er fylgt vöktum 6 tímar á dekki og 6 í
koju. Tólf tíma vinna á sólarhring
alla daga vikunnar, verða 84 stundir
á viku. Menn þreytast auðvitað á
þessu og taka sér frí, það svarar til á
mínum skipum, sem áður segir, að
þá sé hálf önnur skipshöfn skráð á
skipin yfir árið. 54 á skipunum en
einn þriðji í landi á hverjum tíma.
Kjörum er deilt með hlutaskiptum
milli útgerðar og skipshafnar og hvor
aðilinn um sig vill sjá hlut sinn sem
mestan. Skipshöfnin tekur til sín
40% af því aflaverðmæti, sem er til
skiptanna. Skipshöfninni finnstþetta
sízt of mikið, og er auk þess óánægð
með hlutdeildarkostnað af óskiptum
afla, svo sem hlutdeild sína í olíu-
kostnaði.
Við sjáum hins vegar ekki glóru í
því, að rándýrir togarar okkar búi við
bátasamninga eins og nú er. Við
borgum sömu prósentutölu af afla-
verðmæti til mannskapsins og bát-
arnir. Við erum þó með um 25 mill-
jóna fjárfestingu á bak við hvern
mann í skipshöfn, en á bátaflotanum
er fjárfestingin mjög almennt 2 til 5
milljónir. Annars er ekkert nema allt
þokkalegt af okkur að segja í Sjóla-
stöðinni, Guðmundur sonur minn
rekur fyrirtækið með mér, og við er-
um með ágætis fólk bæði til sjós og
lands. Auðvitað viljum við fá meiri
kvóta og jafnframt í dýrari fiski, skip-
in geta afkastað meiru en þau gera.
Á Sjómannadaginn
Sendum öllum íslenskum sjómönnum
árnaðaróskir á hátíðisdegi þeirra.
Alþýðusamband íslands
Tímaritið Vinnan