Sjómannadagsblaðið

Årgang

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1992, Side 34

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1992, Side 34
32 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ fyrir botni fjarðarins mögnuðu veð- urofsann í þessari átt. Skipin lágu eins grunnt og þau höfðu pláss til. Edda lá eina 300 faðma frá landi og lenti fljótlega í erfiðleikum með nótabátana, sem héngu aftan í skip- inu. Annar bátanna fylltist af sjó og ekki um annað að ræða en sleppa honum, þar sem hætta var á að tross- an, sem hann var bundinn með, færi í skrúfu skipsins. Það mátti ekki verða, því að í verstu kviðunum varð að nota fullt vélarafl til að keyra framá legufærin, sem héldu ekki skipinu án þess. Hið sama var um öll skipin á firðinum, þau keyrðu fram á legufærin þótt minna tækju á sig en Edda, sem var mjög háreist á sjó, hún var með stóra brú og borðhátt skip, og enginn farmurinn, síld hafði enn ekki veiðst í þessum túr. Eddan var stærst skipanna, sem lágu á firð- inum, annað en Snæfellið frá Akur- eyri. Á sumum skipanna var gripið til þess ráðs að brýna þeim í fjörunni þegar sjór var fallinn út og þau gætu þá losnað á flóðinu. Þar sem að mörgu þurfti að fylgjast með ofan dekks í þessum veðurofsa, voru nokkrir af skipshöfninni á dekki á Eddunni og skipstjórinn í brúnni, en flestir skipverjar sváfu andvara- lausir framí lúkar. Menn töldu sig ekki í neinni lífshættu á svo stóru skipi inni á firði, því að sjólaust var þarna uppi í landsteinum í landátt- inni. Þegar keyrt er framá legufæri í fár- viðri eins og þessu fádæma veðri, þá getur það orðið, þegar vindstyrkleik- inn dvínar milli hörðustu hviða, sem gerist oft mjög snögglega, að skipið fær of mikinn framdrátt og akkeris- keðjan lendir aftur með síðu skips- ins. Ef næsta hviða skellur á áður en skipið hefur náð að rétta sig af og er farið að hanga á ný í legufærunum, er sú hættan, að því slái yfir akkeris- keðjuna, sem þá liggur aftur með síð- unni og hún lendi undir kjöl og haldi skipinu föstu flötu fyrir vindinum og skipinu hvolfi yfir keðjuna. Það var einmitt þetta, sem gerðist, þegar Eddan fórst á Grundarfirði klukkan hálf fimm aðfaranótt hins sautjánda nóvembers, 1953. Ásg. Jak. Saga Óskars Vigfússonar „Ég svaf í bakborðskoju uppi aft- ast í lúkarnum. Um nóttina vakna ég við þvílíkt högg á síðu skipsins að engu er líkara en keyrt hafi verið á það af stóru skipi á fullri ferð, og skipið kastast á hliðina og ég framúr kojunni og yfir lúkarinn. Hallinn á skipinu svo mikill að ég kom stand- andi niður á kojustokkinn hjá félaga mínum í neðri koju stjórnborðmegin og af svo miklum krafti að ég braut kojustokkinn. Það varð náttúrlega öllum fyrir að forða sér upp úr lúk- arnum umsvifalaust, augnablikið gat skipt sköpum. Ég varð næstsíðastur upp og þá var skipið að velta yfir. Fáum mannanna vannst tími til að ná sér í björgunarbelti, enda allt í einni hrúgu í lúkarnum. Allir fórum við fáklæddir upp eins og hver og einn kom úr kojunni. Ég var í einni þunnri skyrtu og þunnum taubuxum (Ga- berdínbuxum) utanyfir nærbuxunum og á sokkaleistunum. Mér tókst að klifra yfir síldaruppstillingarnar á dekkinu og uppá lunninguna í þeim svifum að skipinu hvolfdi. Ég gat skriðið upp byrðinginn og upp að kjölnum. A skipinu var mjög þykkur kjölur og ég náði að komast uppá hann. Þá fann ég um leið og ég rétti mig til að fara uppá kjölinn, hvað veðrið var ofsalegt, það tætti utan af mér skyrtuna um leið og ég stóð upp, aðeins slitur eftir. Maður sá náttúr- lega lítið frá sér í náttmyrkrinu og særokinu, en þó grillti ég í nokkra menn hjá mér bæði fyrir aftan og framan mig á kjölnum, en ekki hvað marga, nema að ég sá að fyrir framan mig voru þrír menn, og einn þeirra 17 ára piltur, sem hafði veikst af lungna- bólgu daginn áður og var með 40 stiga hita. Ég veit ekki, hvernig hann hefur komizt á kjölinn. Hann náði ekki að lifa slysið af. Skömmu síðar verður mér litið aft- ur eftir kjölnum og sé þar þá engan mann. Þá segi ég við þann, sem var næstur fyrir framan mig, það var roskinn maður. — Eru þeir allir farnir? og átti þá við hvort þeir væru allir drukknaðir. Meiri sjór gekk yfir aftara hluta kjal- arins, þar sem skipið seig dýpra að aftan. Nei segir hann, þeir eru farnir í bátinn. — Eigum við ekki að fara í bátinn líka, segi ég. En hann svarar: — Nei hún flýtur, hún flýtur . . .“ Ég var ekki jafn viss og maðurinn og rís upp til að fara aftur eftir kjöln- um og þannig nær bátnum. Þegar ég reis upp af kjölnum greip rokið mig og ég fleygðist í sjóinn við skipssíð- una. Ég var vel syndur og báturinn var ekki nema eins og fjóra, fimm faðma fyrir aftan skipið. Sjórinn var eins og í suðupotti, það risu náttúr- lega ekki háar öldur í aflandsvindi þrjú hundruð faðma frá fjöruborði, heldur var sjórinn eins og hringiða, sjórinn skrúfaði sig, eins og gerist í hvirfilvindi og ég var að sogast niður, þegar ég greip í eitthvað, sem reynd- ist vera lunning bátsins að framan, hann var hálffullur af sjó og af því lágur á borðið og ég náði því þarna taki, en rokið tók mig aftur með bátnum. Ég sleppti þó ekki takinu á lunningunni, heldur rann höndin eft- ir henni en stoppaði á gúmmíhlíf, sem lunningin var klædd aftast. Þar greip Guðjón skipstjóri í mig og skutlaði eða velti mér innyfir borð- stokkinn, en þá lenti ég með fótinn á stýriskifanum og fann til mikils sárs- auka undan höggi rétt fyrir ofan hné. Sjór var svo mikill í bátnum, að þegar ég veltist innyfir lunninguna og inní skutinn, þá var ég á bólakafi í sjó. Það varð fyrst fyrir þeim, sem verkfærir voru að reyna að minnka sjóinn í bátnum. Ekkert var um borð til að ausa með, en nokkrir mann- anna, þeir sem á dekki höfðu verið, voru í stígvélum og með sjóhatta. Menn jusu nú bátinn með stígvélum og höttum, og það tókst að grynna verulega á sjónum í bátnum, þótt aldrei næðist að þurrausa hann. Þegar ég reis uppúr skutnum, gat ég ekki séð að neinn af félögum mínum á kjölnum væru þar lengur, enda var skipið að sökkva. Skipstjórinn gaf skipun um að slaka á tauginni, sem báturinn hékk í aftan í skipinu. Ég, sem var aftur í skut sá ekki hvað gerðist en það fór tvennum sögum af því, hvort taugin hjóst í sundur þegar
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Sjómannadagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.